Sunday, November 27, 2011

Jólin eru að koma

Mikið rétt prófin eru að koma.
Framundan er andstyggilegur tími depurðar og námslegrar ofkeyrslu. Sko, ég hef heyrt um fólk sem dettur í einhverja svona jólaprófsstemningu, eitthvað svona, oh með fullan kassa af mandarínum, hlauporma í poka, prófatöfluna hengda upp fyrir framan mig, kolniðamyrkur úti og hljóðláta snjókomu við gluggann EN ÉG ER EKKI EIN AF ÞESSUM TÝPUM. Reyndar get ég ekki skilið það hvað getur verið gaman við þetta?
Ég meina mandarínur eru góðar, hlaupormar eru ágætir, snjókoma er fín, en prófatafla? Hvað er það? Og sveitt andvökukvöld og skítugir nemendur samanþröngvaðir í saggafullum kennslustofum leysandi próf til þess eins að fá einkunnablöð rétt fyrir jól sem fá þau til að gráta nema þau heiti stína og þá eru þau ánægð en það er undantekning?!?
Þetta stefnir í skemmtilegt blog hjá mér! Brandari.
Þetta verður mjög erfið vika. Ég hefði getað gert mér hana auðveldari með því að byrja að læra fyrir latínujólaprófið (sem verður á fimmtudaginn) en í staðinn ákvað ég að ögra sjálfri mér og gera ekkert nema virkilega leggja mig fram við að taka óskynsamlegar ákvarðanir sem ég þarf að díla við í framtíðinni.
Það er leitt hvað framtíðin er fljót að koma. Hún kemur réttara sagt á morgun.

Það er ný þáttaröð komin í gang. Ameríka elskaði hana og ég býst við því að ég, sem voða amerískur neytandi muni elska hana líka, perfect að þetta komi þegar prófin eru að byrja. Takk herra alheimur, þú vinnur með mér.
Þátturinn heitir Pan am. Ég horfði á trailerinn á youtube. Þetta verður eitthvað..
Mér fannst þetta svolítið svipað Mad men. Þarna eru konur, þær eru sætar, þær eru svolítið fiftís - sixtís legar.


Reiðir menn, elska þá þáttaröð. Samt löngu dottin úr, horfði eitthvað smá á þætti úr fjórðu seríu um daginn. Það var alveg allt í lagi. Þetta eru svona þættir sem sigra sjónvarpsáhorfandann með lævi blöndnu andrúmslofti og kynþokka en ekki rosalegu handriti (samt alveg gott handrit en samt ekki eitthvað sem myndi ganga upp ef Christina Hendricks væri í a-skálum og January Jones léleg leikkona og þau væru ekki öll í flottum fötum og settið svona fab og eitthvað, January er einmitt góð leikkona, mér finnst hún ætti að fá verðlaun, hefur hún fengið þau? Veit ekki).

Slæmt blogg. Ég er farin að gera stílamöppu til að gleðja enskukennarann minn. Hann gaf mér D fyrir síðustu stílamöppu. Ég held honum þyki vænt um mig og hann sé að nota amerískar leiðir til að hvetja mig til dáða.
Skelli með að lokum ljóði úr uppáhalds bókinni minni frá því ég var barn. Ég vona að fólk haldi áfram að ritskoða sjónvarps og bíó - efni íslenskra barna en leyfi þeim að vaða eldinn þegar kemur að barnabókum. Það gerði ég og lítið á mig núna!


ÁSTARKVEÐJA M

Friday, April 22, 2011

Föstudagurinn langi og ég er dansfífl

GLEÐILEGAN PARTÝDAG!!!!!!! Ég var búin að plana það hefja próflestur á föstudaginn langa, en í gær var ferming Litla Fullkomna og einhvern veginn er ég bara full af rjómakökum og fjöri. Með öðrum orðum ég get ekki fengið það af mér að lesa dönsku eða Eglu eða eitthvað. Ég er í of miklu dansstuði. Ég veit ekki hvort þú trúir mér Herra Lesandi en þegar ég vaknaði í morgun stillti ég á gullbylgjuna og dansaði samfleytt í fjörutíu mínútur við Abba. Hver vill EKKI vera ég?
Í tilefni af fermingu Hödda sem ég mun fjalla meira um síðar í blogginu ætla ég að rifja svolítið upp mína fermingu. Ég vaknaði klukkan átta og vinkona mömmu, hárgreiðslukona, krullaði á mér hárið. Ég borðaði banana og fór niður í kirkju íklædd lakkskóm með konulegum, lágum hælum, kjól úr búðinni spútnik, hvítum sokkabuxum og með gloss sem mamma lánaði mér. Vá, hafði ekki verið jafn damm good lookin síðan ALDREI. (Sem er víst ekkert spes hrós). Í kirkjunni.. hmm.. man ekki. Prestur í glæsilegri hempu, ég sagðist vilja gera jesú að leiðtoga lífs míns, ein góð saga reyndar, drakk EKKI blóð krists, maður á nefnilega að fá líkama krists, obblötuna, dýfa henni ofan í ríbenað ég meina blóðið hans, og borða svo, því miður kom græðgin mér í vond mál því gjemlust borðaði obblötuna áður en hún náði að dýfa ofan í. Allavega. Ég man að ég hugsaði full efasemda um sakleysið mitt og var alltaf að reyna að halda hugsunum fermingarlegum og sannkristnum og þið vitið. Gekk illa. Segisuna. Við hliðina á mér sat stelpa sem var algjör snillingur í að fermast. Ég meina, hún var í alvöru með hvíta hanska og áritaða sálmabók. Sko, mamma hennar hafði sérpantað fermingar servíettur og keypt handmálað fermingarkerti frá nunnum í Hafnafirði. Svo var hún í sporsokkum og með blómanet í hárinu og ég veit ekki hvað. "Ég fæ fermingarmyndatöku beint eftir athöfn." Sagði ég hás hás af, hmm, þessari tilfinningu sem segir manni að maður sé ömurlegur í að öðlast kristilega manndómsvígslu? Jiminn. Þetta fermingarbarn, still gives me the chills.
Allavega, til að slá botn í þessa sögu. Veðrið var wonderbraa, ég meinaða, fermdist líka á Hvítasunnu og svona. Eftir kirkjuathöfnina fór ég í ömurlegustu fermingarmyndatöku sögunnar ásamt ömmu minni. Veislan var nokkuð góð. Fekk mikið af krossum með semelíusteinum. Tölvu frá ömmu. Það var S N I L D. Snild. Svo fékk ég tæplega hundrað þúsund krónur. Þvílíkt ríkidæmi. Þvílík gæfa. Ég í alvöru var hlaupin út að leita að íbúð. Sko, þetta var barnæskan. Maður var ekki orðin jafnbeiskur í hugmyndum sínum um peninga. Um kvöldið hringdi ég í vinkonu mína og við sátum úti í hengirúminu mínu til klukkan eitt um nótt og borðuðum makkintos. Ég fermdist á því sem hefur verið kallað Gullári Ferminganna. Árið 2007. Við þekkjum nú öll vondan orðstír þess árs.

Nú ætla ég að tala um ferminguna í ár. Litli bróðir minn vaknaði klukkan kortér yfir níu til að fara í sturtu. Svo klæddi hann sig og fór niður í kirkjuna. Ekkertmerkilegtekkimerkilegtekkertmerkilegt svo kom veislan. Veitingarnar voru örugglega þær bestu sem ég hef séð. Borðið svignaði undan kræsingum, hefði reyndar mátt vera meira af heitum réttum. (Ég er brjáluð í heita rétti, jömmíííhhh!) Mamma hélt ræðu. Á ég að endursegja hana? Ha? Ókeiókeiókeei. Hún byrjaði mjög beisik á einhverju svona takk fyrir að komuna og eitthvað, svo byrjaði hún.
"Sko, hin börnin mín verða bara að fyrirgefa..."
Jább. Vitiði hvað ég er að meina? Eitt sem verður ekki tekið af mömmu, hún hefur virkilega kennt okkur að fyrirgefa.
"En Höddi HEFUR ALLTAF VERIÐ FULLKOMINN." Allir hlógu góðlátlega.
"Ég er elsta mamman í skólanum en hann verður bara að lifa með því." Allir hlógu góðlátlega.
"Ég meira að segja hélt fyrst að ég væri bara að byrja á breytingarskeiðinu. Svo var ég bara ólétt." *Crowd laughs*.
"Ég tók eiginlega ekkert eftir honum Hödda fyrst og fattaði ekki að hann væri svona fullkominn." Mamma, mamma, mamma, SHAME SHAME SHAME.
"Hann var bara yngstur og svona mjög ákveðinn, síðan var Gunni hins vegar svona ofsalegur krúttlegur og sætur og með þetta bros, Majasvonamælsk, Herdýs svona talanteruð og dugleg og gekk vel í öllu."
Hm. Uh. Maja svona mælsk. Ég veit ekki. Takk mamma? Pínu takmörkuð lýsing kannski haha neinei finn ég smá höfnunarþef haha?!?!?! haha neeeiiinei ég er að grínast, hver segir að mörg orð séu eitthvað betri en bara eitt gott. Hver vill vera krúttlegur eða talanteraður? Enginn? Nei? EN HVER VILL VERA MÆLSKUR?!
Söfnuður: "ALLIR!!!"
Aha. Tekið til greina. Allavega. Ræða continues. (Ætti ég að halda áfram? Er ég ekki komin með rjómann af þessu?)
"En síðan þegar Höddi fékk hitakrampa. Þá fyrst einhvern veginn tók ég almennilega eftir honum, þannig. Ég man bara að ég hélt svona á honum, bara eins og einhverjum svona arinkubbi." *Mamma leikur að hún sé að halda á arinkubbi* *Söfnuður þegir*
"En síðan fórum við á sænska háskólasjúkrahúsið, allt svo gott í Svíþjóð, og bara ég og Höddi á sjúkrastofunni, og það hefur eiginlega bara verið lýsandi fyrir samband okkar síðan þá. Bara hann fullkominn, og samband okkar bara yndislegt síðan þá.."
Ræðan hélt áfram. En ég var hvorki að hlusta né horfa. Kannski vegna þess að augu mín voru full af blóði blönduðum öfundsýkis og höfnunartárum?!?!?!?!? NEI ÉG ER NÚ BARA AÐ GRÍNAST. Annar hápunktur veislunnar fyrir utan ofátið mitt, var auðvitað þegar Lilli opnaði pakkana sína. Hann fékk tölvu eins og ég frá ömmu. Svo fékk hann pening eins og ég. Samt ekki alveg. Hann fékk nefnilega fjögur hundruð þúsund krónur. Flott hjá ykkur fjölskylda, sníða sér þröngan stakk eftir vexti svona í kreppu og þannig. Ég gladdist yfir því að hann fékk fjórum sinnum meira en ég. Ég fékk nefnilega svolítið annað og meira en hann! Nefnilega heimatilbúna kransaköku. ÓJÁ HANS VAR KEYPT MÍN VAR BÖKUÐ AHA HVAÐ SEGIR ÞAÐ YKKUR!! EKKI SVO GLAÐUR NÚNA LITLI GULLKÁLFUR HA HA!!!!! En svo ég segi það satt var þetta frábær veisla. Ég vaknaði södd. Ég meina, ég át alveg nánast tvo veislugesti í ógáti. Seeegissoona. Ég gaf Hödda myndina Spacejam í fermingargjöf og við horfðum á hana um kvöldið.
Ég er ekki mjög bjartsýn á glæsilegt einkunnablað en hverju breytir, ég er svo mælsk. Hver þarf háar einkunnir? Eins og ég hef MARGOFT SAGT og ítreka nú aftur, nineities! Háar einkunnir eru bara 90's. Það er farið og það kemur ekki aftur. Nema kannski þessir köflóttu stóru jakkar og gallabuxnasniðið. Verð að viðurkenna að ég er mjög veik fyrir tíunda áratugs gallabuxnasniði.
Horfið bara á Thelma and Louise.

Og hann, það er hollt fyrir mann:


Er með smá bauga, sjást þeir nokkuð? Ekki á hverjum degi sem maður er bara eitthvað að chilla á náttfötunum með snittur í annarri og fjögurhundruðþúsundkjell í hinni.

Ykkar, M.


PS: Stína, Reynolds, tekinn til greina. Finnst þú samt svolítið hörð í garð Goslings.
Ryan Reynolds kemst á listann.
O sjá! Engar djúpsteiktar franskar í morgunmat hjá þessari snúllu..

Saturday, April 16, 2011

Bestu dagbókarskrifin

Líkamlegt heilsuástand: Slæmt, sérstaklega sé tekið tillit til þess að endurnýjun frumna er enn mjög virk (á að vera mjög virk). (16.apríl 2011)
Geðheilsa: Spurðu sálfræðinginn sem ég sæki EKKI tíma hjá. (Sumt fólk heldur að bara því ég lít alltaf út eins og Hollywood stjarna og er alltaf í frábæru skapi þá sé bara ekkert inn í mér annað en líffæri og vinnuglaður hjartavöðvi. Sannleikurinn er hins vegar sá að stundum finnst mér eins og það sé lítið svarthol í hjartanu á mér og sement fylli alla útlimi mína og tárin hafi frosnað (af tilfinningakuli) í ískalda mola bakvið augun.) Fólk er alltaf að dæma bókina af kápunni.
Samantekt: Frekar slæm af hálsbólgu.
Nóg af þessum hégóma. Það er annarlegt ástand á vígstöðvunum, heimili mínu. Þar sem yndislegi gulldrengurinn hann yngsti bróðir minn mun fermast í vikunni (eða eins og afi mismælti sig: “mun verða jarðaður á skírdag", en hver er munurinn? í grófum dráttum, í alvöru, same place og villt eftirpartý í báðum tilvikum) hefur húsið mitt breyst úr friðsælli sínagógu í ég veit ekki hvað. Húsmóðir mín er mikill aðdáandi gólfbóns (bónunar) og ákvað því að allt húsið skyldi gólfbónað. Ég tók samviskusamlega til í herbergissalnum mínum en var með örfáa hluti eftir á gólfinu en hafði þó, bónurunum til hægðarauka, stillt tveimur stólum upp, þeir gætu þá tillt þessum örfáu hlutum upp á stólana og sett þá fyrir utan herbergið meðan bónun færi fram. (Bónun fór sko fram í gær). Ég gisti hjá kunningjakonu minni, Snitzel, í nótt, því ekki var mælt með því að ganga um gólf fyrr en á laugardaginn (í dag). Öllum þessum bónum bónaranna fylgdi ég. Og í dag sneri ég aftur heim, fársjúk af hálsbólgu en yfrið spennt. Þegar ég steig inn í herbergið mitt fann ég í alvörunni þörf til þess að selja upp af skelfingu og hneykslun.
Með öllu því frómlyndi sem ég bý yfir verð ég bara að segja þetta: herbergið mitt er eins konar helgur íverustaður. Annað fólk þar valsandi um að þefa af og handfjatla hlutina mína þykir mér mjög ólekker tilhugsun. Meira að segja, afar, afar ólekker. Ég geng mjög vel um hlutina mína. Ég meina, ég er enginn tiltektar fasisti, enda held ég að ekki sé hægt að ganga svo langt í tiltekt að teljist til fasisma. Það verður aðeins kallað prúð – og snyrtimennska. Þið vitið. Ef ég kæmist ekki í nánd við tusku eða ryksugu í tvær vikur þá myndi ég ekkert taka Bismarck á þann sem væri að halda mér frá þessu. Mig mundi ekki dreyma um að fá að húðstrykja þann hinn sama hverja einustu nótt skiljiði. Ég meina, ég myndi bölva honum, en ég er enginn brjálæðingur.
En þegar ég kom inn í herbergið mitt.. segjum bara að þessi bónari mætti hafa þakkað mildi Seifs fyrir það að vera komin í hæfilega fjarlægð. Ég tók alveg Hades á ímyndaðann , pervisinn bónara í nokkrar mínútur. Svo ég segi ekki margt en segi þó allt, þá var til dæmis búið að tylla íþróttaskónum mínum þvert yfir uppréttar orðabækurnar mínar, sem ég hafði nostursamlega raðað á skrifborðið mitt. Íþróttaskónum mínum, með sólana grútskítuga af gæsaskít eftir tíð hlaup í kringum tjörnina, hafði verið slengt ofan á orðabækurnar mínar! Ég er ekkert að ýkja, en blíðlyndi, rósemisfuglinn sem ég annars er fann blóðið krauma.



En nóg um þennan hégóma og að öðru.

Ég er komin í páskafrí.
Ekkert meir um það heldur að öðru! LISTA! Allir elska lista. Fólk sem elskar ekki lista það.. ja, ég veit ekki. Hef ekki hitt það. Hitler? Ekki mínar týpur allavega.
En lista um hvað?
Sem einn ákafasti áhangandi karlfyrirsætna þá finnst mér rökrétt að fyrsti listinn verði um fallegustu, myndarlegustu eða frambærilegustu karlmennina.

Tek það þó fram að listin skiptist í tvennt og fyrstu eru þeir bestu úr bókunum, síðari úr hollywood.

RHETT BUTLER - Í Á HVERFANDA HVELI!!!!: Hemjið ykkur folar og ekki googla hann, þá fáiði Clark Gable, sem var vissulega mjög, mjög sjarmerandi maður með sólbrúnt litaraft og eitthvað en Rhett Butler var.. þið vitið hvað ég á við. Ég meina Rhett Butler er ástin í lífi mínu.
WILL Í PHILIP PULLMAN BÓKUNUM: Ég endurtek, ekkert googlerugl. Will hefur hefur verið ástin í lífi mínu númer 2 síðan ég var ellefu ára. (Enda var hann þrettán ára svo það passar). Hugrakkur og hjartahreinn, svolítið niðurbrotin sál og elskaði Lýru.
HEATHCLIFF - Í WUTHERING HEIGHTS!!!!!: Ég ítreka google-bann mitt aftur. Af Heathcliff stafaði einhverri óbeislaðri karlmennsku. Wuthering Heights breytti í alvöru ímynd minni um alvöru karlmenn verulega.
CAMPELL ALEXANDER Í Á ÉG AÐ GÆTA SYSTUR MINNAR: EKKI GOOGLA EKKI GOOGLA Það gæti eyðilagt líf ykkar því eftir þessari bók var gerð syndsamlega mynd, sem dró upp gjörsamlega repulsive mynd af þessari frábæru bók. Campell, ríki, orðheppni silfurskeiðspilturinn sem féll fyrir heittrúuðu, óvinsælu, rebel stelpunni með bleika hárið. Eitt orð: Já.
PEDRO ÞRIÐJI GARCÍA Í HÚS ANDANNA: Þessi suður-ameríska skæruliða týpa, ástríðufullar, bannaðar æskuástir. Örugglega einn sá heitasti.
TARIQ Í ÞÚSUND BJARTAR SÓLIR: Aftur það sama, æskuástir, hetjan, fallegur og bara með einn fót sem sýndi þennan karlmannlega breyskleika. Sakleysið uppmálað, sjúklega frómlyndur og í hjarta sínu hreinn. Reyndar endinn svolítið of jarðbundinn fyrir minn smekk en úr samhengi við bókina.. þessi listi væri ófullkominn á Tariqs.
MAX ÚR GUFFAGRÍNI: Ekki dæma mig, ég veit ekki hvort það var rauða hettupeysan en ég virkilega ætla ekki að hætta að falla fyrir þessari týpu. Eins og ég hef margsagt þá ligg ég marflöt fyrir hverjum þeim sem er tilbúinn að gera STAND OUT by Þrumufleygur í gulum galla með sólgleraugu og dansa moonwalk. Sérstaklega ef hann er svona góður á hjólabretti.
GILBERT Í ANNA Í GRÆNUHLÍÐ: Og nánast fallinn í óverðskuldaða gleymsku! Gilbert var þessi virkilega vel gefni, skemmtilegi og myndarlegi piltur frá Avonlea, sannur herramaður með frábæran smekk á kvenfólki og tók síðan auðvitað barnaskólakennarann á lífið. X við Gilbert.
MICHAEL MOSCOVITZ Í DAGBÓK PRINSESSU: OG aðeins í bókunum. Mér er alvara.Ekki googla þetta nafn folar. Það kemur upp einhver ókunnugur karlmaður með einkennilegt nefbrjósk og ljóta klippingu. Michael Moscowitz er hins vegar strákur í Columbia University sem spilar á gítar í hljómsveit og hefur áhuga á tölvum og stjörnufræði og er þessi steríótýpa (en samt sú uprunalega) fyrir myndarlega, gáfaðan og heilsteyptan ungan mann, svona sætt nörd þið vitið. Maður er alveg að kaupa þetta dót. Líklega myndi ég láta Clueless-Josh leika hann (hann er samt orðinn of gamall í hlutverkið núna, þá myndi ég kannski taka Joseph Gordon-Levitt á það).
JOSH Í CLUELESS: Vá, sko, stundum þarf ekki annað en að vera dökkhærður, með fallegt bros, í nineties fötum að vera gáfaður. Það bara einfaldlega virkar.
.
ERAGON Í ERAGON: GOOGLE BANNAÐ! Aðeins á blekilmandi blaðsíðum Eragon-bókanna. Hvað get ég sagt.. Hann var drekariddari? Ég meina hver segir nei við fátækum bóndasyni sem hífur sig upp metorðastigann með því að vinna hetjudáðir og þannig?
Logi geimgengill fer síðan örugglega í þetta þegar ég hef horft almennilega á StarWars, again, hef tilfinningu fyrir folum..

Svo var Hayden líka að gera það mjög ágætt sem Bob Dylan. Vá. Ég fæ alveg fiðring í iljarnar.

---


MAT GORDON: Ég veit að einhverjir gætu fært rök fyrir því að MG útlitsdýrkun mín væri orðin óhófleg en sannleikurinn er sá að hvað útlit varðar er þessi maður hreinlega óviðjafnanlegur. Hávaxinn með nærri fullkomna andlitsdrætti, skýra kjálka og óræðan andlitssvip með keim af hörku, þetta hetjulega fas, ekki beint drengjalegt en þó þrungið æsku, minnir mann á einhvern grískan guð en samt með þetta kæruleysislega og gáfulega fas sem myndi frekar minna mann á unga hetju í ævintýrabók.

CLIVE OWEN: Hef alltaf sagt, mun alltaf segja, einfaldlega flottastur. Ég meina. Hefur einhver séð Inside Man? JÁ!!

DAVID GANDY: Alvöru karlmenni. Hann skorar stig fyrir að vera þetta líka ljúfmenni sem bloggar. David elskar hunda, Rachel McAdams og er áhugamaður um bíla. Fyrst og fremst er hann þó hreint og beint glæsilegur, fullkominn munnsvipur og þetta dökka litaraft, eins og sjóræningi. Þið þekkið hann á þessu yndislega, litla hógværa brosi.


HEATH LEDGER: Riddaralegur, hæfileikaríkur og fallegur! Hver segir nei við þessum ljósu, sjálfliðuðu lokkum? Ótímabærasta og ósanngjarnasta andlát sögunnar, eða allavega síðan María Antónetta missti af tíma í kökuskreytingum því hún þurfti að leggja höfuðið við gapastokkinn. Jesús, Jósef og María, ég segi ekki meir!


ROBERT PATTINSON: Nei, engin ófrumlegheit í gangi, ég er einfaldlega að stikla á stóru og útlitslega var Robert Pattinson að sýna stórleik í til dæmis Remember Me og Water for Elephants mun leiða eitthvað meira í ljós. Vá Robbi Sykur, haltu áfram að gera góða hluti og haltu áfram að halda þig við heilbrigt litaraft og halda þig frá óheilbrigðu vampýrulitarafti, sígarettum og syndsyge vampýruelskandi Kentuckystelpum. Ótrúlegt en satt þá myndast hann samt mjög illa.


RYAN GOSLING: Ekki endilega mitt eftirlæti almennt en í Notebook sigraði hann heiminn með þessu drenjalega fasi sem fátæki strákurinn sem sigrar hjarta ríku stelpunnar. Snúðurinn.


DAN HUMPHREY: Maður þarf svolítið að sitja sig inn í hinn veruleikafirrta en kynþokkafulla heim Gossip Girl en hey, hverju breytir.. ég kaupi þetta.


JOSEPH GORDON-LEVITT: Horfið á Inception. Bara einfaldlega sætur.



ALEXANDER SKARSGÅRD: True Blood, en nótabene, eftir að hann klippti á sér hárið, smjörsleikt, sítt hár gerir aldrei neitt fyrir neinn. Alvarlegur, dálítið reiður, vampýra, okjájájájájá.




JAMES FRANCO: Ekki horfa á 127 hours, ég meina, gerið það ef ykkur finnst gaman að horfa á góðar bíómyndir (?) en ef þið viljið einfaldlega sjá fallegan mann í heilsusamlegum aðstæðum (með smávægileg geðheilsuvandamál sökum pabbakomplexa, mögulega einu afsakanlegu pabbakomplexar allra tíma) mæli ég með spiderman 1.

JAKE GYLLENHAAL Í DAY AFTER TOMORROW: Þarf ekki að segja meira. Ein kvikmynd segir meira en mörg orð. Donnie Darko líka segja menn. Ég hef aldrei séð hana samt.





Já, þeir eru mun fleiri, en ég verð að fjalla um þá l8er.

..þangað til, takið lýsi, stay poppin' fresh.
Ykkar, M.


Ps: Ég er þessi laglega, bláhærða.

Saturday, April 2, 2011

LET'S DANCE


Hey,hvar á ég að byrja? Lífið líður svo ótrúlega hratt, það er fáránlegt. Ég trúi því ekki að átján ára mánuðurinn minn sé bara allt í einu runninn upp. Apríl er ótrúlega skrýtinn mánuður. Ég er eiginlega alltaf týnd einhvers staðar í einhverju rugluðu millibilsástandi að reyna að venja mig við tilhugsunina um að verða fullorðin. 27. apríl mun koma, fyrr eða síðar. Sama hvað ég geri. Scarlett O'hara var orðin ekkja 18 ára og móðir, hún saknaði hugljúfu tímanna á Tara með gullnar bómullarsléttur svo langt sem augað eygði og aðdáunarfull augnarráð Tarleton-tvíburanna föst við sjálfa sig. Ég er ekki ekkja. En ég hef heldur aldrei haft neina Tarleton tvíbura í takinu. Og ég get ekki sagt að ég hafi fjörugan æskublóma í kinnunum eins og Scarlett.(Kinnarnar mínar taka samt stundum á sig mjög fjólurauðan lit en það er ekkert sem minnir á æskublóma, í alvöru, það vill enginn sjá það). Ég er ekki einu sinni sérlega smáfætt.
Ég ætla að segja frá sjálfri mér því ég hef ekki frá neinu öðru að segja og ekkert annað að gera (nema auðvitað læra fyrir og taka rafrænt líffræðipróf, gera síðari hlutann af 58. kafla í latínu, læra almennilega skemmri deilingu fyrir þriðjudagsstærðfræðiprófið og byrja að setja upp glærusýningu fyrir tölvufræðifyrirlesturinn um Egyptaland, en hverjum er ekki sama, í alvöru? Ríkidæmi fólgið í menntun er ekkert smá 90's.)
Ég fæddist sólríkan þriðjudagsmorgun. Það segir mamma og ég trúi henni.
Fyrst var ég samt alveg: Einmitt. Allar mömmu eru með fettish fyrir fæðingum á sólríkum morgnum. En þá sagði mamma að Herra (risavaxna systir mín) hefði fæðst 28. desember um kvöld.
Ég fæddist, og svo fór ég ein míns liðs í doktorsnám til Lundar í Svíþjóð á fjórða aldursári.
Nei ég er að grínast. Ég fór með fjölskyldunni. Í Svíþjóð fékkst mikið af kavíar í áltúpum, litlum pylsum kölluðum prinspylsur, ballerínukex og bláum gosdrykk sem Gunni, yngri bróðir minn, fékk algjöra þráhyggju fyrir að leita uppi þegar hann komst á táningaskeið.
Í Lundi þurfti ekki að keyra langt til þess að komast út á akur með eplatrjám meðfram eða sólströnd sem var kölluð Lomma. Skólinn minn var kenndur við einhvern Mortens og hélt ég lengi að Bubbi Mortens væri honum eitthvað tengdur. Bernskan. Full af lygum og sjálfsblekkingu. Áður en ég fór í þann skóla, var ég á leikskóla. Ég var með aflitað hár, prinsvalíant klippingu og mjög skrámaða og sólbrúna fótleggi. Þegar ég flutti til Íslands fór ég í tvo grunnskóla og síðan í menntaskóla. Ég eignaðist vinkonu sem heitir Kristín eins og allir vita.
Flestir sem þekka mig vita að ég tala mjög mikið um fjölskylduna mína. Sérstaklega bræður mína. Bróðir minn, Gunni, er frekar eðlilegur unglingsstrákur en það munar ári á okkur. Enn sem komið er hef ég ekki komið auga á stórfelldar misfellur í fari hans og hefur mér á síðustu árum sýnst hann frekar náttúrulegur. Yngsti bróðir minn heitir Höddi og er einfaldlega frábær manneskja. Ekki aðeins með einstaklega fallega beinbyggingu og andlitsfall heldur er hann líka hreinlyndur, (ekki sérlega hugdjarfur en ég er að vinna í því að láta hann lenda í eftirminnilegri lífshættu sem fær hann til að láta af meðfæddri skynsemi og gera eitthvað hetjulegt), lundgóður, kurteis, fyndinn, siðsamur, gáfaður og skemmtilegur. Ég ætla svo að stikla á stóru með systrum mínum enda spannar aldursbilið á milli þeirra nærrum því tvo áratugi. Sú yngri heitir Eva og er algjört gull af stelpu. Sú eldri er Herra stóra syss. Bekkjasystir mín sagði að hún væri hippster. Hún er allavega mjög hávaxin og hefur ekki fengið sér permanent þrátt fyrir að vera á þrítugsaldri og fermd. Það ætti að segja manni eitthvað um persónuleika hennar. (Æjæj).
Mamma mín er kona en ekki pabbi minn.
Ég sjálf myndi lýsa sjálfri mér sem mjög áhugaverðri manneskju. Ef ég að vera alveg einlæg (og beita þar með sterkasta vopni mínu í mannlegum samskiptum) segði ég að ég hefði í raun aldrei laðast jafnákaflega að neinni manneskju og sjálfri mér þrátt fyrir að eiga oft í mjög stormsömu og bitru sambandi við sjálfa mig. Helstu einkenni mín eru að ég er mjög æðaber og með fatta þumalputta. Ég er með sítt ljósskolleitt hár, blá augu og stóran munn. Ég er meðalgrannvaxin og meðalhá. Helsti galli minn er líklega slæmur persónuleiki en ég get verið mjög hnyttin og er afar góð í að herma eftir til dæmis röddum fólks.
Helsta takmark mitt í lífinu er að verða vinsæl, dáð og rík en þar sem ég er að vera einlæg verð ég að viðurkenna að þetta er bara eitthvað sem ég get séð í fjarlægri framtíð. Þangað til er ég að einbeita mér að andlegu heilbrigði mínu og menntun (eða allavega stefni ég á það í nálægri framtíð, þangað til er ég bara takin' a chillpill).

Ég veit ekki enn hvenær ég mun deyja, en það gerist einn daginn og ég hlakka ekki til.

Í dag fórum við Stína í ræktina. Ég vaknaði óvart klukkan níu um morgun og lá uppi í rúmi og las "Fantatak" eftir Jerzy Kosinski og hringdi svo á kristilegum tíma í Stínu og bað hana að koma með mér að þjálfa byssurnar.
Við Kristín erum skipulega að undirbúa okkur undir það að verða einhvern tímann króaðar af í húsasundi af einhverjum ruddum. Þá er eins gott að vera massaður og svífast einskis til að bjarga lífi sínu (jafnvel þó það feli í sér ofbeldi og ég segi þetta sem mjög mikill friðarsinni, stundum verður bara að taka Bismarck á þetta, á suma dugar bara blóð og járn). Þess vegna erum við báðar með kort í World Class. Þegar við vorum á leiðinni út mættum við pabba og bróður mínum. Líkamsræktarstöðvarnar eru alltaf að verða heimilslegri og heimilislegri.

Í gær fékk ég einkunn fyrir kjörbókarritgerðina mína í ensku. Ég skrifaði um bókina Catcher in the Rye og fékk mjög óverðskuldaða áttu, enda endaði ritgerðin á mjög einlægum nótum og var full af erfiðum og löngum enskum orðum og flóknum skáldlegum túlkunum, sumar sóttar glóðvolgar af sparksnotes. Ég byrjaði að skrifa ritgerðina klukkan hálf fimm um daginn og kláraði ekki fyrr en klukkan ellefu um kvöldið og nánast aldrei hefur nokkuð reynt jafnmikið á andlegt þrek mitt. Ég hefði gefið mér í minnsta lagi níu. Enda stóð ég á fætur fyrir framan allan bekkinn og löðrungaði enskukennarann minn.
Ekki. Enskukennarinn minn er fyrir hið fyrsta alltof hávaxinn (hann er eins og ofursmávaxni latínukennarinn minn sagði: "..einn af þessum hávöxnu enskukennurum..") og að auki var ég ekki alveg það tryllt. Ég var bara hneyksluð á þessari akademísku forsmán. Ég býst við því að hann hafi dregið mig niður fyrir að skila of seint..... .. .. .. ..... ...
Hann má samt eiga það að honum er annt um að fræða nemendur sína um "Pop culture" og er alltaf að spila eitthvað eins og nítján sekúndur af Billy Joel og smá Smiths og svona.
Í þessari viku (svo ég fari nú að ljúka þessu rugli) skilaði ég loks inn útfylltu blaði á skrifstofuna, brautarskráning. Ég valdi fornmála 2, þýsku.
Fyndið.
Ha ha. Ég veit í alvörunni ekki hvaða fáviti er með fjartýringuna að heilanum á mér, en ég er alltaf að gera eitthvað og fatta að ég hafi gert það eftir á.
Ég sem ætlaði á nýmála2 til að sýna mótstöðu gegn menntahroka. (Hefði samt ekki gert það, hversu boring þarftu að vera til að velja hagfræði eða viðskiptafræði þegar þú getur lært latneskan viðtengingarhátt?)

Bækrakkar (samt aðallega folar), ykkar einlæg Maja/María/Marteinn (þið ráðið)



Og svo smá 80's í tilefni af því að systir mín fæddist á níunda áratugnum og mamma mín fílar diana ross:

http://www.youtube.com/watch?v=4GtyMeEcPPE

(mamma er að syngja með)

Sunday, March 13, 2011

bloggfangelsið

Tina Turner - What's love got to do with it



Tina Turner er svo mikið legend, ég meina, hver púllar þetta dú? GO Tina 4ever folar! Svo er þetta lag lagið okkar Stínu í Singstar, ásamt vitanlega Tom Jones laginu. Afmælið hennar Eyrúnar vinkonu var í gær. Ætti ég að blogga um hana? Á gullöld hópbloggsíðna voru afmælisblogg bara ákveðið félagslegt fyrirbæri. Ég meina. Ef þú fékkst ekki afmælisblogg einhversstaðar, varstu bara ekkert. Ég meina, þú varst bara einhver fjandans félagsbotnlangi, bara eitthvað svona manndrasl. Ég ætti að skella inn einhverri mynd og kannski einhverri einkunn eða eitthvað. Eyrún er svona sjöa. Djók, hún er algjör tía. 
Hvað er að mér. 
Sorry, þetta er ófyrirgefanlegt folaljúflingar. 
Ég blogga aldrei. Það væri afsakanlegt ef ég lærði heima eða stundaði félagsleg samskipti (fjölskyldan er ekki tekin með né platónskt ástarsamband mitt við þig Stína). Hins vegar læri ég aldrei heima en held því fram að þetta blogg sé eitthvað svona Princess diary dæmi. Ég hef samt afsökun.
Afsökun 1: Tölvan mín er biluð.
Afsökun 2: Vá, ég var að horfa á Robin Hood áðan. Það var ömurlegt krakkar! Robin Hood á ekki að vera leikin af Russell Crowe. Robin Hood á ekki að vera í hasarmyndabúningi. Þetta er algjört rugl. Ég á bókina í A4 stærð, myndskreytta, upp í sumarbústað. Ókei, ég þekki þennan mann. Svo ætti Hrói Höttur að verða alþjóðlegt heiti hans. Robin Hood er svo mikið verra. Hins vegar, persónan sjálf, Hrói, er rosalega aðlaðandi og svona "inspiring" týpa. Í bókinni sjáiði til. Russell Crowe er bara einhver þrekinn náungi með bauga og andlit sem beinlínis æpir á mann: "ÉG ER MÖMMUSTRÁKUR MEÐ PABBAKOMPLEXA" Hata þessa manntegund. Það góða við þessa langdregnu og leiðinlegu mynd var að Cate Blanchett var í henni. Wáw.

RANGT

Rétt..

Ég er ekkert að segja að Ridley Scott hafi verið hinn fullkomni Hrói, en þó svo margfalt nær því. Við hann segi ég: Flott hjá þér sykursnúður! Við Russell segi ég: Russell farðu aftur í löggukrimmann sem þú áttir að fæðast inn í deyja í. 



Jæja. Í gær átti Eyrún afmæli og í dag á yndið hún litla systir mín afmæli. Ég er að segja ykkur það. Núlifandi yngsta kynslóð er alveg að fara að nálgast grafarbakkann með þessu áframhaldi. Ég var fóstur tíundaáratugarins og í morgun þegar ég leit í spegil taldi ég fjórar ennishrukkur.  Ef þú varst barn áttunda áratugarins, sko, ég segi bara eitt og það er "öndunarvélin er við sjóndeildarhringinn".

Það var gaman í afmælinu í gær ef þið viljið vita það. Það hafði samt sína annmarka, ég meina, hin fullkomna kvöldstund er annmarkalaus og hin fullkomna kvöldstund er bara möguleg innihaldi hún Mat Gordon eða Clive Owen og þá verður hún að eiga sér stað í fortíðinni því núna er Owen bara eitthvað að horfa á stubbana með börnunum sínum og að vera útivinnandi faðir. UUHHHHG.
Ekki það að ég hafi eitthvað á móti útivinnandi feðrum.
Við fórum út að borða á Hornið, borðuðum yfir okkur af sælgæti (í mínu tilviki, hvenær ætla ég að þroskast í alvöru..) og sungum nágrannanna geðveika í Singstar (samt ekki, mér finndist gaman að hlusta á sautján ára stelpur syngja WHATS LOVE GOT TO DO, GOT TO WITH IT með tilheyrandi fótstappi), vanmetnasta og besta BESTA afþreying sögunnar. Hversu margir eru HitArtist sem Tina Turner? Og við Stína vorum ekki einu sinni að vanda okkur. Þá hefðum við orðið Sing Star, báðar. Afmælisbarnið var ánægt með gjafirnar sínar. Afmælisbarnið? Hvernig læt ég. Afmæliskonan ætlaði ég að segja. Rúnsi var í því að spilla deginum í barnalega hluti. Í alvöru. MARK MY WORDS. Þann 27. apríl verð ég ekki heima að læra undir dönskustúdentspróf. Þið finnið mig út í Nóatúni að kaupa klámblað sem mjög löghlýðinn borgari með bara þennan average siðferðiskenndarstuðul. 



Magic er svo mikið lífið, þú verður bara geðveikt glaður af því. 
Myndi skrifa lengra en mér tókst að minnka skjáinn svo nú sé ég ekki það sem skrifa með því að píra augun mjög mikið svo ég verð að hætta í smá. 

MMMMMM

Thursday, March 3, 2011

Allt að gerast

Nei, grín, auðvitað ekkert að gerast.
 Hvenær fer Nimrod frændi að fara að heimsækja mig í draumi og tilkynna mér að ég sé andi? Hvenær fer ég að finna týndu tvíburasystur mína? Hvenær rennur (raunverulega) ellefu ára afmælisdagurinn minn upp og ég fæ ákveðið bréf frá einum skóla? Hvenær ætla ég að lenda í því að detta í gegnum spegil eða finna hring með heimsskiladufti á eða eitthvað.. Ég er farin að finna virkilega höfnunarlykt af öllu þessu máli.
Hvernig gat ég gleymst?
Ég er ekki að fara að sætta mig við það að fá eitthvað svona "lífið er ævintýri"- eitthvað..

Já, og Fríða  takk fyrir góða kommentið þitt, þú afsakar að ég gat aldrei svarað og blogg eru sjaldgæfur fugl hér.. en Heiðan þín var líka Heiðan hennar Stínu, fyndið! 


Þangað til eitthvað virkilega ævintýralegt hendir mig ætla ég bara að sitja inn í herberginu mínu, stara út í loftið og slefa. Þetta verður afneitun á leiðinlegan hversdaginn.

En samt, til að flagga einlægninni, verð ég að viðurkenna að ég held að ævintýri í anda C.S Lewis eða Harry Potters væru kannski of mikið. Ég meina fyrir taugarnar.


Ég átti, fyrir nokkrum mánuðum, samræður við eldri systur mína hana Herlöngu, um það hvað ég vildi hafa óskað að foreldrar mínir hefðu verið fornleifafræðingar sem sérhæfðu sig í svona svipuðu dóti og pabbi Indiana Jones hafði gert, eða í það minnsta rótlausir flækingar með passlega mikinn pening á milli handanna. Ég ætlaði að útvega framtíðarbörnum mínum svoleiðis líf.
Herlöng sagði að það væri svo ótrúlega vitlaust hjá mér, því öll börn þráðu rætur. Öryggi.
Ég samþykki þetta. En afhverju gátu foreldrar mínir ekki valið spennandi rætur? Eins og í austurrísku ölpunum. Ég vísa til Heiðu og samtals ég átti um þetta mál við Stínu um daginn. Þetta er það sem börn þrá! Frelsið fólgið í ævintýrunum. Bara ég, þú, nestið og flæðandi hlíðar alpanna með litlum hvítum geitahnoðrum.
Betra og heilsteyptara blogg um þetta síðar.

Já, og bráðlega kemur listi. Listi yfir eitthvað sem er best.


Bæ, Hvarerégmaja


Friday, February 25, 2011

Tímamót

KVÖLDIÐ folar.
Ég er komin með nóg af því að hver morgun hefjist á andvarpi og sé eiginlega bara kvöl. Í alvöru talað. (Hver morgun á að vera góður, ég meina, þetta er mjög stór hluti lífsins). Náttúran innra með mér öskrar á sólarupprás og úthvíldargeisp með tilheyrandi handleggsteygingum.
Í staðinn vakna ég í fósturstellingum með fjögurra kílóa þung augnlok og kjálka of stirða af þreytu til að geta geispað nautnalega. Ég þjáist af morgunógleði orsakaðri af þreytu en ekki óléttu. HVERSU SVEKKJANDI geta ótímabær óþægindi eiginlega verið.
Ég þarf í alvörunni að fara að panta mér vekjaraklukku með áföstu sólarupprásarvasaljósi á netinu.
Rúmið mitt er samt framúrskarandi. Alveg virkilega frábært. Gormadýnur hafa bara einfaldlega sannað sig, þær komu, sáu og sigruðu og svampdýnur eða eggjabakka-heilsudýnur eru bara einhver seigur brandari sem er alveg á grafarbakkanum í dýnubransanum. Ég væri samt til í tvær sængur til viðbótar. Eina til að sofa með undir mér og tvær ofan á. Hvað get ég sagt? Ég er virkilega mikill nautnaseggur. Það er allt rómantísku uppeldi mínu, ömmu Herdísi, Disney myndum og ástarbókarlestri (og ævintýralestri) að þakka.
Ég er samt ekki komin til að ræða þetta. Ég er mætt á svæðið til að tilkynna mögulegt hvarf mitt af síðunni. Ég er að hugsa um að stofna aðra. Funheitum aðdáendum mínum lofa ég að sjálfsögðu stöðugri uppfærslu á þeirri nýju og auðvitað sama töfrandi dagbókarþemanu sem mun láta ykkur fá það á tilfinninguna að þið liggjið flatmagandi á tvíbreiða rúminu ykkar í köflóttum náttbuxum að lesa loðna dagbók með svona unglingalegum úrklippum og ljósmyndum og slíku. Kannski með kirsuberjakóla í annarri hendi, en ég mæli samt ekki með því. Það er mjög bragðvont. 

 Ps. Var ekki prins Valíant, ljóshærður? Ég datt í smá fortíðarleit á google og ég sé ekkert nema svarthærðan mann þegar ég googlaði hann. Ég er MJÖG ósátt. Prins Valíant skipaði mjög stóran sess í svona "baksviðs"mynd æsku minnar, ég meina, ég las bókina fyrst í fyrra (hálfa) en þær voru samt alltaf þarna. Gunni átti þær allar og eitthvað af þeim heima hjá ömmu og þetta eru afar flottar bækur. Svo spillir ekki fyrir hvað riddarasögur eru frábærar; kvendýrkun, kurteisi, kristilegt hugarfar og þessi klassíska klipping sem tók pottaklippinguna upp á allt annað level. Góður boðskapur. Ekki hægt að setja út á þetta.



Ps.2. Þegar ég var lítil eyddi ég öllum mínum frístundum í að horfa á teiknimyndirnar með Heiðu sem amma átti á óteljandi mörgum spólum. Ég lét mig dreyma um líf á svipuðum nótum og Heiðu í mörg ár.
1. Kjóllinn hennar. Ég bað frænku mína að kaupa svoleiðis handa mér í Þýskalandi rétt áður en hún fór þangað. Hún fann hann ekki. Ég býst við því að hann hafi selst upp svona 1909. Maður getur víst alltaf verið vitur eftir á.
2. Heyrúmið hennar. Svo ég tali enn meira um rúm. Ég sagði að gormadýnur væru það besta. Heyrúm eru betri. Ég man það núna. Afi hennar safnaði saman heybing og breytti teppi yfir og hún svaf á því. Draumur sem ég býst við því að muni blunda lengi í mér.
3. Maturinn hennar og Péturs. Þessir hringlóttu, dökkbrúnu brauðhleifar! Þessi oststykki! Þessi mjólk sem þau drukku af skálum eða beint úr spenum geitanna.. Ég skar einu sinni sjálf gotta-oststykki í tvo bita og reyndi að borða.. ég býst við því að gotta-ostur sé ekki nægilega hrein afurð.

Mér mun alltaf þykja svo innilega vænt um þessar fallegu teiknimyndir!!
                                          Afi, Klara, Pétur, Snædrottning litla og Heiða sjálf.



Kveðja, M.

Tuesday, February 8, 2011

ERFIÐIR TÍMAR

                   Smá tilfinningaleg kreppa í gangi en ég er að vinna í því.
Þessi dagur hefur verið mjög leiðinlegur en hann átti samt góða spretti, ég keypti tvær skáldsögur, eina sögubók og snickerssúkkulaði.
Ég tók leiðinlegt próf og átti samræður við kennarann minn, SA undir blálok próftímans.
Ég: "Fæ ég hálft stig ef ég veit hvers son einhver er en man ekki allt nafnið hans?" (Brosti blíðlega, maður gefur seint upp vonina um að SA sé ginnkeypt fyrir sjarmerandi nemendum. SA reyndist ekki ginnkeypt fyrir sjarmerandi nemendum í dag).
Spegilaugað: "Allir  eru einhvers son."
Ég: "Fæ ég stig ef ég veit hvers son?"
Spegilaugað: "Á íslensku gildir allt nafnið."
Ég: "Þannig ég fæ ekki stig fyrir að vita helminginn?"
Spegilaugað (með titrandi nasvængi og lokuð augu eftir hálfra mínútna þögn): "Ekki prútta við mig um einkunnir!"

Þetta var smásmugulegt og ómerkilegt próf, ég lærði ekkert af því nema það að menning Íslendinga til forna var leiðinleg og þurrskúnksleg og helst ætti að brenna allar þessar fornsögur og grafa í mykjuhaug. Þetta er bara það sem maður lærir í skólanum. Ég er ekkert að reyna að vera umburðarlynd. Afhverju er það alltaf þannig að ég sé sjálfa mig grafna ofan í eitthvað kviksyndi umburðarlyndisins? Síðan hvenær komst það í tísku og varð viðurkenndur hluti unglingamenningar að unglingar væru að umbera skólakerfið? Musteri hinnar andlegu eymdar ÆTTI að umbera mig með flóttakenndu og hræðslulegu augntilliti, þar sem ég er uppreisnargjarn unglingsmunkur. People should not be afraid of their governments, governments should be afraid of their people.

Þetta blogg var leiðinlegt, ég held ég fari bara með bækurnar mínar tvær og grafi mig í snjó út í garði.

Ps: Ég veðjaði við sessunaut minn sem svo skemmtilga vill til að er eins konar annar eigandi þessarar litlu, unglingsstelpulegu og ilmandi vefsíðu. Það sem þið vissuð ekki um herr Snitzel er að þó hann sleppi því að blogga situr hann ekki bara og slefar -íklæddur dumbrauðum flónellnáttfötum með ísaumaðri kórónu á brjóstvasanum sem er skjaldamerki hertogaættar frá Dusseldorf, þekkt fyrir langrækni og þvalt handtak að loknum fasanaveiðitúrum, - nei! Herr Snitzl lærir latínu af mjög miklum móð.
Enda með alveg gígantískar einkunnir.
Ég er meiri lífsnjótandi og held að það sé meira til enn bara bænahald innan veggja Musteri hinnar andlegu eymdar, og einmitt þess vegna vil ég síst af öllu haldi áfram einhverjum bænalestri að vinnudegi loknum. Þegar ég sleppi út fyrir fúna veggi Gamla musteris,  líður mér stundum eins og lífið sé bara fullt af ævintýrum eins og til dæmis blogguppfæringum.
Skiljiði, ég leyfi mér hluti.
En aftur að byrjun þessa "P.s". Ég veðjaði semsagt við margnefndan sessunaut minn. Ég sagði: "Ég veðja að ég fái hærra en þú á þessu latínuvorprófi."
Hrokagikkurinn sneri sér upptendaður að mér og skrifaði skjálfhent af sjálfsöryggi - og ánægju: " Ókei, veðjum. 50 þúsund bandaríkjadalir."
Ég náði með samningasnilli minni að prútta þetta okurtilboð hrokans niður í 50 kall. En úr því gömlu voru byrjaðar ætluðum við ekkert að hætta strax. Ég veðjaði að Snitz yrði fornfræðingur eða latínukennari. Veðmál samþykkt - þúsund kall. Ég veðjaði einnig að hún yrði eins og pabbi hennar. Veðmáli aftur tekið og þúsund kall lagður undir. Af ónæmni sinni fyrir manneskjum lagði þessi góði herr síðan 1000 kall undir í því veðmáli að ég yrði félagsfræðikennari.
Ég verð semsagt rík í framtíðinni. Get ekki beðið.


Tilhlökkun vikunnar: Hittast hjá Fríðu og gestablogg *spennandi og fersk nýjung hjá folunum* frá mjög svo myndarlegri bekkjarsystur minni sem situr fyrir aftan mig og ég sný mér reglulega úr hálslið fyrir til þess að eiga snögg en árangursrík samskipti við. Klöppum  fyrir Ingu Brá.

Að lokum mynd af gömlu look-a-like-i mínu. Honum Snúði úr kvikmyndinni "Bróðir minn ljónshjarta". (Þessum til vinstri). Ég þótti alveg eins. Mér fannst það auðvitað ekkert gaman. Seint verður sagt að þessi litli snáði sé eitthvað lítið beauty. Ekkert efni í Little Miss Sunshine allavega.
Enda vildi ég alltaf líkjast Önnu í "Lína Langsokkur - á ferð og flugi".






ÁSTARKVEÐJA -M

Wednesday, January 26, 2011

Á ég að vera tortryggin ef bróðir minn segist ætla í bað?

Á mínu heimili förum við ekki í bað. Við förum í sturtu.
Ég meina ég veit að hann er væntanlega ekki bara að chilla í froðubaði með ástarsögu.
Ég held hann sé að rækta meindýr eða graffa á baðspegilinn.
..



Allavega folar, það er komin nýr reglumeðlimur í Fjórða klaustur B í Musteri hinnar andlegu eymdar. Hún heitir Daníel (fyrirgefðu mér Debz þetta kom óvart upp úr mér) en Daníel er brosmild og ljúf og þess vegna held ég að hún sé góð viðbót í einangrunarklefan sem við reglumeðlimir deilum. Hún lífgar upp á myntugræna veggina og fær mann til að gleyma stækri núðlulykt og unglingsstrákasvitalykt og viðtekur smekklegur gervi-ilmur gervi-drykksins Diet kók sem einhver ósvífin kvenkyns fyrirlesari laug að Daníel að væri það hollasta. Ég (þú líka Snitz) höfum verið að meta það hvort að Daníel sé raunverulega verðug þess að vera tekin inn í innsta hring reglunnar og ákváðum að segja já eftir að hafa komist að því að hún er mjög kurteis og með blómlegar kinnar og fagureygð. Eigum þó enn eftir að fiska ýmislegt upp úr þessari leyndardómsfullu dömu (til dæmis öll leyndarmálin hennar) en ég er með karlfyrirsætur á mínum snærum.

Í dag var miðvikudagur.  Ég hafði kviðið honum lengi. Ég hafði kviðið honum heilan þriðjudag. Sem betur fer reyndist spá mín um að ég þyrfti að kveljast vegna þess hvað ég væri ólærð alveg ónauðsynleg, ég meina, ég ætti að fá óskarsverðlaun fyrir leik minn þegar kemur að því að feika heimavinnuskil. Stína ætti að fá óskarinn fyrir vinnusemi sína. Flott hjá þér Snitz! :D  Verst að Hollywood gefur vinnusömu fólki ekki óskarinn.
Vinnusemi er ekki nógu kynþokkafull.
Hins vegar reyndist spá mín um það að ég þyrfti að fara svöng í gegnum daginn rétt.
..
.....
...... TAKK SNITZEL EÐA EKKI. En það var samt ekki heimsendir því Daníel var svo góð að lána mér þegar reiðilegi en myndarlegi kakólandspilturinn tilkynnti með sinni þreytulegu rödd að það væri ekki heimild. Karlkyns drottningarnar á Bleikt.is væru örugglega mjög ósáttar með súkkulaðistrákinn í Kösu því karlmenn eiga ekki að hafa þreytulega rödd heldur ákveðna og í mesta lagi þykkjuþunga. Alllllavega.
Tölvufræðidauði var fyrsti tími og það var niðurlægjandi því ég vissi ekki hvað control shift væri.
Næsti tími var stærðfræði og það var æði.
Næsti tími var líka æði og síðan hinn líka æði og síðan var matarhlé. Þá komu nokkrar dúllur og sungu í kösu. Íþróttir voru hátindur dagsins myndi ég segja, því þar voru óþekktir hæfileikar mínir sem spretthlaupari uppgötvaðir. Miðað við ástand mitt var ég algjör fokkíng Usain Bolt. Eða það hélt ég. Þar til ég fór heim og sagði Madömmunni minni, með hjartað allt í aukaslögum af stolti og hún kramdi stolt mitt og gleði eins og feita húsflugu milli fingra sinna þegar hún sneri sér við og sagði:
Hún:"Flott hjá þér, sjáðu, ræktin er að skila sér."
Ég: "Ha?" Ertu ekki að fatta að þú hafir alið af þér nýjan Usain Bolt eða?
Hún: "Núna ertu loksins að komast í smá form."
Ég: "Ég var aldrei í neinu formi, ég hleyp hratt! Það er hæfileiki minn."
Með grátstafinn í kverkunum hljóp ég upp í herbergið mitt og endurtók með sjálfri mér að þó ég hefði nú eytt hálfum degi i að plana frama minn sem spretthlaupari með ólympíugull á arinhillunni þá ætti ég enn þá heima í auglýsingabransanum. Þú verður rík, þetta er allt í lagi, þú verður rík, þú verður rík. 

Svo google aði ég beautiful old rich houses og myndir af fallegum ökrum og einhverju drasli til að róa mig.


Smá Taylor því hún skilur að stundum er maður ekki í djúpu stuði heldur vill bara hlusta á melódískt gítarvæl um ástina..
..
.. sem aldrei varð.

Haha, smá vitnun í Batman, gamla melankólíska stærðfræðikennarann minn.  Stína......

 


 

                                                                                                                                                                                                                                       
Bæ :9 M

Tuesday, January 25, 2011

Hurðin o.fl.

Hæ, folar.
Í dag fór ég í skólann en það er orðinn nánast vani eftir bráðlega tólf ár af ástundun.
Þetta er þrautpínd dauðaganga og afplánun helvísks menntakerfis en stundum er alveg mjög fínt þar (: Sérstaklega þegar maður er komin heim. Þá getur maður verið alveg: "Hvað var í gangi þarna?" og alveg: "Vá, hvað ég er full  af seiglu fyrst ég meikaði þennan skóladag sem var bara svo ekki absorbing".
Og getur byrjað að lesa í vafasamar augngotur, sérkennilegar aðstæður og furðulegt háttalag. Dæmi sem maður bara lætur fljóta áfram fyrir augunum á sér þegar maður er í miðri senu.
Dagurinn í dag var þriðjudagur. Þriðjudagar eru ömurlegustu dagar vikunnar.
Þessi var ágætur svo ég býst við hinu versta á morgun. Ég er strax orðin kvíðin fyrir því að mæta ólærð í tíma, missa úr hjartslög í tjarnahringnum og vera svöng í matarhléinu.
Skólinn minn er algjört greni að innan. Að utan er þetta mjög sæt bygging með rómantískum old school sjarma (þó ég búist við því að ef ég setji upp flirt-glasses geti ég séð eitthvað slíkt innan dyra líka) og með kapítalísku ívafi þar sem miðjan trónir hærra og eðalhvítir veggirnir láta mann hugsa um bómullarekrur (hint í borgarastyrjöldina fyrir ykkur sem eruð vel að ykkur í bókmennta - og mannkynssögunni: NIÐUR MEÐ BLÁSTAKKA aand oh my Rhett..)  og pergament. Svo bakvið er bara eitthvað rusl eins og Snitzel benti kurteislega á um daginn. 
Til að setja punktinn yfir i-ið á Musteri hinnar andlegu eymdar (Snitz, þú mannst) er það auðvitað Hurðin.
Hurðin hljómar sem saklaust fyrirbæri, ferköntuð trésmíð haganlega komið fyrir í dyragætt aðalinngangs skólans. Það eru auðvitað bara skrauthvörf því Hurðin er gömul afsökun fyrir aftökum á Íslandi.
Það var einu sinni smiður sem hét Bergsteinn. Bergsteinn smíðaði Musterið en eftir að smíðum var lokið formlega var hans þó enn þörf þar sem hann sinnti ýmsum smávægilegum störfum innandyra. Með sög í sigggrónum höndum sat hann löngum í einhverju horninu og lagaði fúnar sperrur og fleira. Ekki brást það að hann fékk, á göngum skólans, að kenna á hrokafullum augngotum nemenda, eins og oddahvössum fjaðurpennum stungið í brotið bak hins heiðarlega vinnumanns. Bergsteini sveið undan þessu og hafði óbeit á renglulegum dekursnúðum með dýrkeyptar skólabækur sem smeygðu sér inn um dyr Musterisins með ekki eitt ærlegt handtak á ferilsskránni.
Eins og gerist með menn varð Bergsteinn brátt geðsjúkur af skapofsa og smíðaði nýja hurð, hola að innan sem hann fyllti með málmstöngum til þess að geta fylgst með matrósarklæddum nemahríslunum kremjast milli stafs og hurðar og hljóta þar með mjög ósmekklegan dauðdaga.
Bergsteinn var sendur í mjög langt gæsluvarðhald að flippkasti loknu. En það er önnur saga.

                                                  Þetta er náttúrulega bara mjög ógeðslegt.

                                                         Þetta er Hurðin.

Hurðin er þarna enn.



Þessi sakleysislegi skólastrákur var fórnarlamb Bergsteins og Hurðarinnar. Hann var uppi fyrir tíma myndavéla en sessunautur rissaði upp þessa mynd af honum í tíma meðan allt lék enn í lyndi. 




Allavega, folar.. ég og Mat að lokum.







Adios.. bæ, ykkar M.

Tuesday, January 18, 2011

Targetin mín, hnattlíkanið mitt, ríkidæmi mitt, naglalakkið mitt, beikonið sem mig langar í, og króatíski, guðhræddi riddarafolinn okkar allra, o.fl.

Eitt gott lag hérna að ofan.
Target er nokkuð sem hver manneskja þarf til að þrauka unglingsárin.
Eins og allir menn hef ég mín target en þau eru flest í stjarnfræðilegri fjarlægð og oft skilur jafnvel mig og targetið að, þykkur bókakjölur og hin hárfína og stundum ósýnilega lína sem skilur að raunveruleika og ímyndun . Og þá þýðir ekki annað en að gráta í stórt glas, snökkta í popppoka og horfa á rómantíska gamanmynd. (Grín. Hvaða fáviti myndi reyna svo mikla abstrakt tilfinningarúnks geðveiki). Ég er nefnilega manneskja sem á mjög erfitt með að þola höfnun sko. Nefni það bara hvernig happadrætti blindrarfélagsins og háskólans hefur hafnað umsókn minni um betri lífstíl svona um það bil UUUHalltaf. Þess vegna er ég með tilfinningahömlun og dáist bara að Dan Humphey úr fjarlægð.
Þetta er auðvitað bara lífið.
Stórt epli með ormi í.
Stundum sko, ertu eplið!
Stundum ertu eplatínarinn!
Stundum ertu eplaborðarinn!
OG stundum, stundum kæri vin, ertu ormurinn.
Það væri snilld ef lífið hefði einhverja möguleika eins og internetið sem er með alla möguleika í heimi, en því miður er lífið gríðarlega forn uppfinning sem bíður bara upp á þetta beisik, fæðast, borða, fara í bíl, lesa bók, fara í bíó, horfa á megavideo, fara í flugvél, leira, lifa, fjölga mannkyninu og kveðja hótelið. Þá á ég sko við, deyja. Með því á ég semsagt við ef þú ert kaþólskur, fara í hreinsunareldinn eftir skamma stund. Eða semsagt ef þú ert hindúi endurfæðast sem fluga, lamadýr eða baptistaprestur.
Haha, hindúi sem er baptistaprestur.. haha.. ókei en aftur að kjarna málsins. Eplakjarna málsins. (HAHAHA vá ég er alveg að yfirstíga öll venjuleg mörk mín í dag). EF að lífið væri með mikið af möguleikum gæti ég til dæmis hoppað inn á milli Rhett og Scarletts og skakkað leikinn. Eða byrjað með Rhett.
Segisvona.
Ég gæti líka bara eitthvað bara notað hnattlíkanið mitt og ferðast á puttanum (ég er alltaf að því sko en það er auðvitað bara einn af þessum lonely jokes sem ég stunda, svona labba með puttunum frá útlagaklakanum Iceland til alvöru heimsins bara á hnattlíkaninu) en já, þá gæti ég bara eitthvað labbað inn í Manhattan og hitt ástina mína, hann Michael. Allavega, ég ætla ekkert að missa mig. Likurnar á að hnattlíkanið mitt sé á sýru eru ekkert gígantískar. Hvað er samt án kóks málið með að búa á þessu "landi"? Þú veist? Hvað ætlar þessi klaki að vera lengi að molna og bráðna úr einmanaleik? Bara að pæla. Ég meina vera okkar hérna er bara einhver þrjóska. Væri til í að eiga sumarbústað hérna svona til að fara hingað einu sinni til tvisvar á ævi minni til að grilla eða fara í bláa lónið eða fara upp á vatnajökul eða eitthvað, annars myndi ég helst kjósa að búa einhverstaðar þar sem maður þarf ekki að vera klæddur eins og geimfari til þess að lifa af.
MIG LANGAR Í BACON!
Þið haldið að þetta sé random, þetta er ekki random. Nei. Þetta er yfirlýsing. Sko, mig langar í bacon, og hér kemur kenningin afhverju, því allir vita að bacon er náttúrulega bara steikt svínafita sem fer illa með þig, EN á hinn boginn ef þú býrð í heimi sela, ísbjarna og mörgæsa þá beinlínis æpir ófiðraður líkami þinn á þig: "SAFNAÐU SELSPIKI! GERÐU ÞAÐ MEÐ ÞVÍ AÐ BORÐA BACON!" Og maður er alveg: "Hey ég vil ekki verða feit rólegur félagi".
Svo fær maður sér beikon. 'nuff said.



Í dag vorum við í tíma hjá spegilaugnamanninum. Það er svo ótrúlega áhugavert sko. Hversu oft fær maður fjörutíu mínútur til að horfa á mann í sínum eigin ævintýraheimi? Bara svona fjórum sinnum í viku NÁKVÆMLEGA EIGINLEGA ALDREI. Þess vegna er þetta algjör snilld. Hann bara lokar augunum, krossleggur fingurnar á fjaðurmögnuðu sixpackinu og bara lætur allt flæða sko fyrir sjálfan sig og veit bara ekkert af því að það eru alveg þrjátíu æstir aðdáendur fyrir framan hann, að slafra allan fróðleikinn í sig. 
Í dag var hann að tala um miðaldasögur. Riddarasögur. Ég, og S ég veit þú ert sammála mér, vil innleiða meiri riddarastíl í nútímann. Er allur heimurinn búin að gleyma því hvað drekar + guðhræðsla + kvendýrkun +miðaldariddarar eru sjarmerandi? GREINILEGA!!! Bara smá máli mínu til stuðnings.












Þetta er einmitt svona þessi týpíski riddari sem ég er að tala um. Heath gleymdi aldrei listinni að vera fallegur og hetjulegur foli..




bæ krakkar, ástarkveðja  M

PS: Að sitja á sig naglalakk er svo vanmetið, það er svo erfitt sko. Respect G*E*L*L*U*R, mínar naglalakkssögur enda alltaf með morði á einhverju saklausu.
PS2: Vildi að ég væri rík. Er orðin skuldug upp yfir haus og allir í kringum mig eru farnir að beita mig andlegum þrýstingi og gefandi mér þetta rukkaralúkk sem er bara svo ekki ***flirting***, ef þú fattar mig elsku foli.

Sunday, January 16, 2011

Jáog

Fyrir hvernig drottningar er þessi vefur eiginlega?
Er þessi drottningartitill eitthvað djók kannski?
Eins og í "hringjarinn í notre dam" þegar þeir krýna kóng þann sem er ljótastur og henda síðan tómötum í hann á meðan hann snýst á einhverri satanískri pyntingarskífu í miðaldastíl..?
Nei, bara að pæla.

M

Vefur fyrir drottningar

Bleikt.is, ég gæti orðið geðveik. Ég gæti snúið mér við og ætl upp úr mér móðurlífinu. (Samt líklega ekki. Það væri samt viðeigandi). Ég gæti tekið nærliggjandi húðmjólkurflösku og grýtt henni í hnattlíkanið mitt.
Þetta er bara sagt svona til þess að lýsa gremjunni sem fyllir mann þegar maður fer inn á vef, sagðan gerðan fyrir drottningar og rekst á karlkyns pistlahöfunda að skrifa pistla sem eru móðgun við hálft mannkynið. Hvernig getur fólk horft svona aðgerðarlaust upp á kvennaréttindabaráttu fara svona hrapallega aftur? Hvernig er það mögulegt að svona auðvelt sé að rekast á karlmenn og konur sem eru helmingi eldri en maður sjálfur en sanna það með skrifum sínum að þær eru vanþroska lífverur.
Ætla að vitna í Kristján Örvar.
(Kristján Örvar er opinber persóna sem tjáir skoðanir sínar á veraldarvefnum á vefsíðu sem auglýst er reglulega í ríkissjónvarpinu. Hann skrifar pistla á vefsíðu fyrir drottningar. Takið eftir folabeib:)
 Nokkur brot úr pistlinum "Brjóst?"

Hvað er málið með kvenmannsbrjóst? Afhverju er þetta svona heilagt?
 Kristján Örvar kemur sér rakleitt að efninu sem segir okkur strax hvað hann er að fjalla um. En hver er kjarninn eða "the jist" eins og H. enska myndi spyrja. K Ö er svolítið á línu vafans með hreint svar en hann getur komið með eitt  vel til rokkað. Folar hafið augun opin.

Tveir fitukeppir hangandi utan á þessum æðislegu verum sem konur eru!  

Kristján Örvar er húmoristi og finnst konur æðislegar verur. Það er gott mál. Takið eftir því að hann er góður fulltrúi íslenskra ungmenna, svo mikil kímni en samt svo mikil fágun, en samt svo hreint og beint. Er að elska hvað hann er beinskeyttur. Alveg hnífstunga í grínoghnyttiðgaman-líffærið.

En þetta er náttúrulega ástæðan fyrir því að brjóst eru svona áhugaverð...þau eru pínu „bönnuð". Það væri ekkert fútt í þeim ef gellur væru bara með þetta hangandi út um allt fyrir allra augum! Svo eru brjóst líka oft flottari í brjóstarhaldara en ekki...ímyndunaraflið og allt það.


Herr Snitz, folar, pabbi og mamma (þau lesa þetta ekki en þetta er hlýleg kveðja), vill K Ö hafa stelpurnar á haldaranum á sínum innilegustu enda vill hann helst bara halda þessu á ímynduðu nótunum frekar en að sjá brjóst með berum augum því þá væri leyndardómurinn um fitukeppina og fæðubúrin tvö úr sögunni. Betra bara að halda þessu í fallegu, fullkomlega, kúptu bómullar formi. Líklega samt silki. Maður er farin að þekkja þessa tígra.


Jafnrétti sem þetta fólk þykist skilja er svo mikil lygi. Ég hef ekkert við það að gera. Ég þarf bara kvenréttindi. Þegar nóg er komið af þeim getur maður farið að tala um jafnrétti. Helst þegar konur eru komnar með meiri völd en karlar. Þá geta þær allavega notfært sér dömulegt skilningsríkis-gen þeirra eða allavega bitra reynslu til þess að skilja bág kjör karla sem auðvitað þrá jafnrétti. Ying og Yang lífsins.  Djók.


Ástarkveðja, M. 

Saturday, January 15, 2011

Ár Gullnu Kanínunnar

Long time no seen folahjörð! (sem ég hef reyndar ekki minnstu glóru um innihaldið í, þó að eyrún sé nokkuð líklegur kandídat)Alla vega, það er nýtt ár!!! Ár Gullnu Kanínunnar, algjört dúlluár.Samkvæmt kínverskum spádómum er ÞETTA er það sem gerist á árinu:
 "According to Chinese tradition, the Rabbit brings a year in which you can catch your breath and calm your nerves.  It is a time for negotiation.  Don't try to force issues, because if you do you will ultimately fail.  To gain the greatest benefits from this time, focus on home, family, security, diplomacy, and your relationships with women and children.   Make it a goal to create a safe, peaceful lifestyle, so you will be able to calmly deal with any problem that may arise."
 Ég er ekkert smá sammála, ég ætla strax að byrja að einbeita mér að bættari samskiptum við konur og börn. Ég ætla líka að (sorrý að ég sé að stela frá þér maja)....
1. Læra á þvottvél fyrir 18 ára afmælisdaginn
2. Fara oftar á tónleika
3. Fara til útlanda án foreldra minna
4. Læra stærðfræði oftar en bara fyrir próf
5. Slaka meira á, læra að meta avókadó og þróa með mér skynsamleg, félagsleg áhugamál.
6. Hætta að vera íþróttatossi
7. Fara að ákveða hvernig ég get orðið rík í framtíðinni

Þetta eru raunar bara örfá atriði, ég ætla að gera margt meira-t.d. fitna og byrja að passa upp á neglurnar mínar. Og hætta að eyða öllu klinkinu mínu í Cösu.
Þetta verður því miður ekki lengra, ég er að fara í einstaklega síðbúið þrettándaboð, en ef einhver hefur einskæran áhuga á að ná í mig þá verð ég með símann, I promise.
Kv. S

Thursday, January 13, 2011

forget about the PRIIIICE TAG

Mamma, pabbi, folar,
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
Leyfið þessu myndbandi nú að rúlla meðan þið lesið bloggið. Stína. Ekki svíkjast um. Þú hefur skyldur líka.
Jessie J á sér framtíð og hún syngur líka mjög innilega, kannski ætti ég að gerast umboðsmaður í hjáverkum.. ég hef svo mikla tilfinningu fyrir hæfileikum annarra.
Djók.

Samt alls ekki.
Aftur að Jessie J. Hef hlustað á tvö lög með henni. Þetta lag og svo hið vafasama Do it like a dude, sem er vægast sagt skelfilegt, sömuleiðis myndbandið við það. Held að þrýstingur poppelítunnar hafi ýtt þessum listamanni út af beinu brautinni rétt eitt andartak sem fékk hana til þess að detta í þessa slæmu poppfroðu. Allavega, Jessie, ef það vill svo til að þú lesir íslensku og ratir inn á KF þá vil ég að þú vitir að ég stend með þér.

Áramótin voru yndisleg og þeir þrír skóladagar sem ég upplifað á nýja árinu hafa verið mjög ólíkir helvíti.
Hef á tilfinningunni að árið 2011 sé fullt af fögrum fyrirheitum. Ég verð bara að láta sjá mig oftar á erlendum súpermörkuðum og flugvöllum svo ég verði einhverntímann uppgötvað. Þetta gengur í alvörunni ekki lengur.

Að öðru leyti er markmið mitt og nýársheiti að reyna að vera hamingjusöm og hætta að vera svona upptekin af áliti annarra og skríða loks út úr þessari feimniskel sem sál mín er að kremjast í og springa út eins og rós og verða vinsæl.
Nýársheit 2 er að verða ekki feikveik og læra heima og hætta að hugsa illskulega og byrja að taka ákvarðanir sem fela í sér áhættu og lífsreynslu í staðinn fyrir að velja alltaf the save way. Ég er alltof værukær og afreka þess vegna aldrei neitt.
Auk þess ætla ég að byrja að einbeita mér að því að vera góðleg og umhyggjusöm manneskja. Þrátt fyrir allt er ég örugglega makráðasta manneskja sem ég þekki (fyrir utan mannleysuna í næsta herbergi við mig, unglingar, gæti ælt). En ég þekki líka bara svona átta vel þannig það er ekki vísindalega marktækt. Hverju sem því skiptir,  einlægni er sigur, krakkar, sigur!
Nýársheiti 4: Fá bílpróf.
Svo ætla ég í ræktina og láta langþráðan draum rætast. Hætta að vera makráð og verða íslenskt kvenkyn af fola. Já. MERI! 
Hljómar neikvætt. Kvenfyrirlitning. Teygir sig meira að segja til hesta.

Ástarkveðja, M.

Ps: Ég fletti orðinu makráður upp. Það gekk vel. Nota stór orð.. Nýársheiti 4: Byja að nota stór orð. Það ætti að vera  hugtækt og spaugsamt (sjitt er hérna með samheitaorðabókina mína og orðið gaman er samheiti yfir kvensköp, (!!!!) semsagt, vandið orðaval ykkar folar), hver veit á hvaða hnyttinyrði ég mun hitta. Ég ætla að koma mér í fylkingarbrjóst fyndnisyrða og fyrirbjóða sjálfri mér að nota bara takmarkaðan táningslegan orðaforða minn.
Bæ aftur.

(Ps2: haha fæðingarblettur er með samheitið hunangsblettur.. Svavar Sigmundsson ritstjóri Samheita orðabókar hvað varstu eiginlega að hyggja.)

Nokkrar hugljúfar svipmyndir frá árinu 2010..