Bleikt.is, ég gæti orðið geðveik. Ég gæti snúið mér við og ætl upp úr mér móðurlífinu. (Samt líklega ekki. Það væri samt viðeigandi). Ég gæti tekið nærliggjandi húðmjólkurflösku og grýtt henni í hnattlíkanið mitt.
Þetta er bara sagt svona til þess að lýsa gremjunni sem fyllir mann þegar maður fer inn á vef, sagðan gerðan fyrir drottningar og rekst á karlkyns pistlahöfunda að skrifa pistla sem eru móðgun við hálft mannkynið. Hvernig getur fólk horft svona aðgerðarlaust upp á kvennaréttindabaráttu fara svona hrapallega aftur? Hvernig er það mögulegt að svona auðvelt sé að rekast á karlmenn og konur sem eru helmingi eldri en maður sjálfur en sanna það með skrifum sínum að þær eru vanþroska lífverur.
Ætla að vitna í Kristján Örvar.
(Kristján Örvar er opinber persóna sem tjáir skoðanir sínar á veraldarvefnum á vefsíðu sem auglýst er reglulega í ríkissjónvarpinu. Hann skrifar pistla á vefsíðu fyrir drottningar. Takið eftir folabeib:)
Nokkur brot úr pistlinum "Brjóst?"
Hvað er málið með kvenmannsbrjóst? Afhverju er þetta svona heilagt?
Kristján Örvar kemur sér rakleitt að efninu sem segir okkur strax hvað hann er að fjalla um. En hver er kjarninn eða "the jist" eins og H. enska myndi spyrja. K Ö er svolítið á línu vafans með hreint svar en hann getur komið með eitt vel til rokkað. Folar hafið augun opin.
Tveir fitukeppir hangandi utan á þessum æðislegu verum sem konur eru!
Kristján Örvar er húmoristi og finnst konur æðislegar verur. Það er gott mál. Takið eftir því að hann er góður fulltrúi íslenskra ungmenna, svo mikil kímni en samt svo mikil fágun, en samt svo hreint og beint. Er að elska hvað hann er beinskeyttur. Alveg hnífstunga í grínoghnyttiðgaman-líffærið.
En þetta er náttúrulega ástæðan fyrir því að brjóst eru svona áhugaverð...þau eru pínu „bönnuð". Það væri ekkert fútt í þeim ef gellur væru bara með þetta hangandi út um allt fyrir allra augum! Svo eru brjóst líka oft flottari í brjóstarhaldara en ekki...ímyndunaraflið og allt það.
Herr Snitz, folar, pabbi og mamma (þau lesa þetta ekki en þetta er hlýleg kveðja), vill K Ö hafa stelpurnar á haldaranum á sínum innilegustu enda vill hann helst bara halda þessu á ímynduðu nótunum frekar en að sjá brjóst með berum augum því þá væri leyndardómurinn um fitukeppina og fæðubúrin tvö úr sögunni. Betra bara að halda þessu í fallegu, fullkomlega, kúptu bómullar formi. Líklega samt silki. Maður er farin að þekkja þessa tígra.
Jafnrétti sem þetta fólk þykist skilja er svo mikil lygi. Ég hef ekkert við það að gera. Ég þarf bara kvenréttindi. Þegar nóg er komið af þeim getur maður farið að tala um jafnrétti. Helst þegar konur eru komnar með meiri völd en karlar. Þá geta þær allavega notfært sér dömulegt skilningsríkis-gen þeirra eða allavega bitra reynslu til þess að skilja bág kjör karla sem auðvitað þrá jafnrétti. Ying og Yang lífsins. Djók.
Ástarkveðja, M.
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
ReplyDeleteÉg vona að hann Kristján sé spenntur yfir vaxandi frægð og frama og gúggli sig reglulega því að hér með skora ég á hann að leggjast í almennilega naflaskoðun. Ef ég væri ekki svona rosalega sjóuð og veraldarvön þá myndi ég líklega vera gjörsamlega orðlaus núna.Ég meina, þessi maður fær athygli heimsins, orðum hans er varpað á sjálfan veraldarvefinn og hann ákveður að skrifa (á síðu fyrir konur) um tadadada...hvað hann er pirraður yfir því að fá ekki að pota í brjóst á almannfæri, rétt eins og hann potar í maga...eða þannig skildi ég þetta alla vega. Sem er magnað umkvörtunarefni á síðu fyrir konur um konur nefndum eftir sjálfum erkilit kvenna, hr. bleikum.Svona án djóks..þetta er furðulegt.
Og já! Stillum söguvogina upp á nýtt! Á næsta tengslaneti ætla ég að standa upp og segja:"dömur mínar, ég legg til að við tökum völdin næstum 20 aldirnar eða svo því aðeins þannig næst fullt jafnrétti."
-Kriss
hahaha og svo er annað S hefur þessi maður aldrei potað í brjóst áður? Ég meina á einhverju sparimómenti í lífi hans? Það er nefnilega semímikill munur á brjóstapoti og poti í nafla.
ReplyDeleteHann þarf að fara að fá einhverja fræðslu.
-Mojo