Ég meina ég veit að hann er væntanlega ekki bara að chilla í froðubaði með ástarsögu.
Ég held hann sé að rækta meindýr eða graffa á baðspegilinn.
..


Í dag var miðvikudagur. Ég hafði kviðið honum lengi. Ég hafði kviðið honum heilan þriðjudag. Sem betur fer reyndist spá mín um að ég þyrfti að kveljast vegna þess hvað ég væri ólærð alveg ónauðsynleg, ég meina, ég ætti að fá óskarsverðlaun fyrir leik minn þegar kemur að því að feika heimavinnuskil. Stína ætti að fá óskarinn fyrir vinnusemi sína. Flott hjá þér Snitz! :D Verst að Hollywood gefur vinnusömu fólki ekki óskarinn.
Vinnusemi er ekki nógu kynþokkafull.
Hins vegar reyndist spá mín um það að ég þyrfti að fara svöng í gegnum daginn rétt.
..
.....
...... TAKK SNITZEL EÐA EKKI. En það var samt ekki heimsendir því Daníel var svo góð að lána mér þegar reiðilegi en myndarlegi kakólandspilturinn tilkynnti með sinni þreytulegu rödd að það væri ekki heimild. Karlkyns drottningarnar á Bleikt.is væru örugglega mjög ósáttar með súkkulaðistrákinn í Kösu því karlmenn eiga ekki að hafa þreytulega rödd heldur ákveðna og í mesta lagi þykkjuþunga. Alllllavega.
Tölvufræðidauði var fyrsti tími og það var niðurlægjandi því ég vissi ekki hvað control shift væri.
Næsti tími var stærðfræði og það var æði.
Næsti tími var líka æði og síðan hinn líka æði og síðan var matarhlé. Þá komu nokkrar dúllur og sungu í kösu. Íþróttir voru hátindur dagsins myndi ég segja, því þar voru óþekktir hæfileikar mínir sem spretthlaupari uppgötvaðir. Miðað við ástand mitt var ég algjör fokkíng Usain Bolt. Eða það hélt ég. Þar til ég fór heim og sagði Madömmunni minni, með hjartað allt í aukaslögum af stolti og hún kramdi stolt mitt og gleði eins og feita húsflugu milli fingra sinna þegar hún sneri sér við og sagði:
Hún:"Flott hjá þér, sjáðu, ræktin er að skila sér."
Ég: "Ha?" Ertu ekki að fatta að þú hafir alið af þér nýjan Usain Bolt eða?
Hún: "Núna ertu loksins að komast í smá form."
Ég: "Ég var aldrei í neinu formi, ég hleyp hratt! Það er hæfileiki minn."
Með grátstafinn í kverkunum hljóp ég upp í herbergið mitt og endurtók með sjálfri mér að þó ég hefði nú eytt hálfum degi i að plana frama minn sem spretthlaupari með ólympíugull á arinhillunni þá ætti ég enn þá heima í auglýsingabransanum. Þú verður rík, þetta er allt í lagi, þú verður rík, þú verður rík.
Svo google aði ég beautiful old rich houses og myndir af fallegum ökrum og einhverju drasli til að róa mig.
..
.. sem aldrei varð.
Haha, smá vitnun í Batman, gamla melankólíska stærðfræðikennarann minn. Stína......
Bæ :9 M
Hahaha þetta var truly frábært, Daníel er örugglega mjög sáttur.En vá hvað mamma þín misskilur þig (okei, reyndar sama á þessum bæ, ef það væri ekki fyrir hana mömmu þá væri ég örugglega stuttklippt kvensa á leiðinni í questorembættið, þú veist hvað ég meina..)en, þetta eru klárlega hæfileikar hjá þér!
ReplyDeleteVoy a estudiar espanol, byyeeee!
p.s. ég hló mjög oft, t.d. að þessu:
"Svo google aði ég beautiful old rich houses og myndir af fallegum ökrum og einhverju drasli til að róa mig."Hljómar svolítið mjög mikið eins og þú haha
This comment has been removed by the author.
ReplyDelete