Saturday, January 15, 2011

Ár Gullnu Kanínunnar

Long time no seen folahjörð! (sem ég hef reyndar ekki minnstu glóru um innihaldið í, þó að eyrún sé nokkuð líklegur kandídat)Alla vega, það er nýtt ár!!! Ár Gullnu Kanínunnar, algjört dúlluár.Samkvæmt kínverskum spádómum er ÞETTA er það sem gerist á árinu:
 "According to Chinese tradition, the Rabbit brings a year in which you can catch your breath and calm your nerves.  It is a time for negotiation.  Don't try to force issues, because if you do you will ultimately fail.  To gain the greatest benefits from this time, focus on home, family, security, diplomacy, and your relationships with women and children.   Make it a goal to create a safe, peaceful lifestyle, so you will be able to calmly deal with any problem that may arise."
 Ég er ekkert smá sammála, ég ætla strax að byrja að einbeita mér að bættari samskiptum við konur og börn. Ég ætla líka að (sorrý að ég sé að stela frá þér maja)....
1. Læra á þvottvél fyrir 18 ára afmælisdaginn
2. Fara oftar á tónleika
3. Fara til útlanda án foreldra minna
4. Læra stærðfræði oftar en bara fyrir próf
5. Slaka meira á, læra að meta avókadó og þróa með mér skynsamleg, félagsleg áhugamál.
6. Hætta að vera íþróttatossi
7. Fara að ákveða hvernig ég get orðið rík í framtíðinni

Þetta eru raunar bara örfá atriði, ég ætla að gera margt meira-t.d. fitna og byrja að passa upp á neglurnar mínar. Og hætta að eyða öllu klinkinu mínu í Cösu.
Þetta verður því miður ekki lengra, ég er að fara í einstaklega síðbúið þrettándaboð, en ef einhver hefur einskæran áhuga á að ná í mig þá verð ég með símann, I promise.
Kv. S

2 comments:

  1. ertu að grínast? síðbúið þrettándaboð á djammdagskvöldi? Vá, hvað þú ert léleg.

    Flottur listi samt. Vera góð við konur og börn? Þvílíkt spaug. Ég hef verið að stunda það síðan ég hljóp út úr mammzcutie og það hefur skilað mér nákvæmlega þessu:
    1. Engu.
    2. Engu.
    Konur vilja vera beittar misrétti og börn vilja vera barin. Svo eru börn leiðinleg.
    Farin að horfa á mad men með epladjús í kristalsglasi og þykjast vera karlmenni.

    Eréghérmaja

    ReplyDelete
  2. ohh ég veit, ef það er eitthvað sem ég þoli minna en konur þá eru það börn, óþolandi fyrirbæri!
    Epladjús í kristalsglasi er svo aðeins of macho drykkur.
    -Herr Snitzel

    ReplyDelete