Mamma, pabbi, folar,
GLEÐILEGT NÝTT ÁR!
Leyfið þessu myndbandi nú að rúlla meðan þið lesið bloggið. Stína. Ekki svíkjast um. Þú hefur skyldur líka.
Jessie J á sér framtíð og hún syngur líka mjög innilega, kannski ætti ég að gerast umboðsmaður í hjáverkum.. ég hef svo mikla tilfinningu fyrir hæfileikum annarra.
Djók.
Samt alls ekki.
Aftur að Jessie J. Hef hlustað á tvö lög með henni. Þetta lag og svo hið vafasama Do it like a dude, sem er vægast sagt skelfilegt, sömuleiðis myndbandið við það. Held að þrýstingur poppelítunnar hafi ýtt þessum listamanni út af beinu brautinni rétt eitt andartak sem fékk hana til þess að detta í þessa slæmu poppfroðu. Allavega, Jessie, ef það vill svo til að þú lesir íslensku og ratir inn á KF þá vil ég að þú vitir að ég stend með þér.
Áramótin voru yndisleg og þeir þrír skóladagar sem ég upplifað á nýja árinu hafa verið mjög ólíkir helvíti.
Hef á tilfinningunni að árið 2011 sé fullt af fögrum fyrirheitum. Ég verð bara að láta sjá mig oftar á erlendum súpermörkuðum og flugvöllum svo ég verði einhverntímann uppgötvað. Þetta gengur í alvörunni ekki lengur.
Að öðru leyti er markmið mitt og nýársheiti að reyna að vera hamingjusöm og hætta að vera svona upptekin af áliti annarra og skríða loks út úr þessari feimniskel sem sál mín er að kremjast í og springa út eins og rós og verða vinsæl.
Nýársheit 2 er að verða ekki feikveik og læra heima og hætta að hugsa illskulega og byrja að taka ákvarðanir sem fela í sér áhættu og lífsreynslu í staðinn fyrir að velja alltaf the save way. Ég er alltof værukær og afreka þess vegna aldrei neitt.
Auk þess ætla ég að byrja að einbeita mér að því að vera góðleg og umhyggjusöm manneskja. Þrátt fyrir allt er ég örugglega makráðasta manneskja sem ég þekki (fyrir utan mannleysuna í næsta herbergi við mig, unglingar, gæti ælt). En ég þekki líka bara svona átta vel þannig það er ekki vísindalega marktækt. Hverju sem því skiptir, einlægni er sigur, krakkar, sigur!
Nýársheiti 4: Fá bílpróf.
Svo ætla ég í ræktina og láta langþráðan draum rætast. Hætta að vera makráð og verða íslenskt kvenkyn af fola. Já. MERI!
Hljómar neikvætt. Kvenfyrirlitning. Teygir sig meira að segja til hesta.
Ástarkveðja, M.
Ps: Ég fletti orðinu makráður upp. Það gekk vel. Nota stór orð.. Nýársheiti 4: Byja að nota stór orð. Það ætti að vera hugtækt og spaugsamt (sjitt er hérna með samheitaorðabókina mína og orðið gaman er samheiti yfir kvensköp, (!!!!) semsagt, vandið orðaval ykkar folar), hver veit á hvaða hnyttinyrði ég mun hitta. Ég ætla að koma mér í fylkingarbrjóst fyndnisyrða og fyrirbjóða sjálfri mér að nota bara takmarkaðan táningslegan orðaforða minn.
Bæ aftur.
(Ps2: haha fæðingarblettur er með samheitið hunangsblettur.. Svavar Sigmundsson ritstjóri Samheita orðabókar hvað varstu eiginlega að hyggja.)
Nokkrar hugljúfar svipmyndir frá árinu 2010..
vá maja við verðum í alvörunni að fara að ræða um þær myndir sem þú mátt eða mátt ekki birta af mér á netinu!!Án djóks kona, þetta er verulega slæmt. Líkar samt bloggið sjálft, hvað þýðir eiginlega makráður???-KHHH
ReplyDeletemakráður þýðir að vera latur elskan mín. og þú mátt fjarlægja allt sem þú vilt MC Kriss, þú veist það baby. - M IS OUT
ReplyDelete