Þessi dagur hefur verið mjög leiðinlegur en hann átti samt góða spretti, ég keypti tvær skáldsögur, eina sögubók og snickerssúkkulaði.
Ég tók leiðinlegt próf og átti samræður við kennarann minn, SA undir blálok próftímans.
Ég: "Fæ ég hálft stig ef ég veit hvers son einhver er en man ekki allt nafnið hans?" (Brosti blíðlega, maður gefur seint upp vonina um að SA sé ginnkeypt fyrir sjarmerandi nemendum. SA reyndist ekki ginnkeypt fyrir sjarmerandi nemendum í dag).
Spegilaugað: "Allir eru einhvers son."
Ég: "Fæ ég stig ef ég veit hvers son?"
Spegilaugað: "Á íslensku gildir allt nafnið."
Ég: "Þannig ég fæ ekki stig fyrir að vita helminginn?"
Spegilaugað (með titrandi nasvængi og lokuð augu eftir hálfra mínútna þögn): "Ekki prútta við mig um einkunnir!"
Þetta var smásmugulegt og ómerkilegt próf, ég lærði ekkert af því nema það að menning Íslendinga til forna var leiðinleg og þurrskúnksleg og helst ætti að brenna allar þessar fornsögur og grafa í mykjuhaug. Þetta er bara það sem maður lærir í skólanum. Ég er ekkert að reyna að vera umburðarlynd. Afhverju er það alltaf þannig að ég sé sjálfa mig grafna ofan í eitthvað kviksyndi umburðarlyndisins? Síðan hvenær komst það í tísku og varð viðurkenndur hluti unglingamenningar að unglingar væru að umbera skólakerfið? Musteri hinnar andlegu eymdar ÆTTI að umbera mig með flóttakenndu og hræðslulegu augntilliti, þar sem ég er uppreisnargjarn unglingsmunkur. People should not be afraid of their governments, governments should be afraid of their people.
Þetta blogg var leiðinlegt, ég held ég fari bara með bækurnar mínar tvær og grafi mig í snjó út í garði.
Ps: Ég veðjaði við sessunaut minn sem svo skemmtilga vill til að er eins konar annar eigandi þessarar litlu, unglingsstelpulegu og ilmandi vefsíðu. Það sem þið vissuð ekki um herr Snitzel er að þó hann sleppi því að blogga situr hann ekki bara og slefar -íklæddur dumbrauðum flónellnáttfötum með ísaumaðri kórónu á brjóstvasanum sem er skjaldamerki hertogaættar frá Dusseldorf, þekkt fyrir langrækni og þvalt handtak að loknum fasanaveiðitúrum, - nei! Herr Snitzl lærir latínu af mjög miklum móð.
Enda með alveg gígantískar einkunnir.
Ég er meiri lífsnjótandi og held að það sé meira til enn bara bænahald innan veggja Musteri hinnar andlegu eymdar, og einmitt þess vegna vil ég síst af öllu haldi áfram einhverjum bænalestri að vinnudegi loknum. Þegar ég sleppi út fyrir fúna veggi Gamla musteris, líður mér stundum eins og lífið sé bara fullt af ævintýrum eins og til dæmis blogguppfæringum.
Skiljiði, ég leyfi mér hluti.
En aftur að byrjun þessa "P.s". Ég veðjaði semsagt við margnefndan sessunaut minn. Ég sagði: "Ég veðja að ég fái hærra en þú á þessu latínuvorprófi."
Hrokagikkurinn sneri sér upptendaður að mér og skrifaði skjálfhent af sjálfsöryggi - og ánægju: " Ókei, veðjum. 50 þúsund bandaríkjadalir."
Ég náði með samningasnilli minni að prútta þetta okurtilboð hrokans niður í 50 kall. En úr því gömlu voru byrjaðar ætluðum við ekkert að hætta strax. Ég veðjaði að Snitz yrði fornfræðingur eða latínukennari. Veðmál samþykkt - þúsund kall. Ég veðjaði einnig að hún yrði eins og pabbi hennar. Veðmáli aftur tekið og þúsund kall lagður undir. Af ónæmni sinni fyrir manneskjum lagði þessi góði herr síðan 1000 kall undir í því veðmáli að ég yrði félagsfræðikennari.
Ég verð semsagt rík í framtíðinni. Get ekki beðið.
Tilhlökkun vikunnar: Hittast hjá Fríðu og gestablogg *spennandi og fersk nýjung hjá folunum* frá mjög svo myndarlegri bekkjarsystur minni sem situr fyrir aftan mig og ég sný mér reglulega úr hálslið fyrir til þess að eiga snögg en árangursrík samskipti við. Klöppum fyrir Ingu Brá.
Að lokum mynd af gömlu look-a-like-i mínu. Honum Snúði úr kvikmyndinni "Bróðir minn ljónshjarta". (Þessum til vinstri). Ég þótti alveg eins. Mér fannst það auðvitað ekkert gaman. Seint verður sagt að þessi litli snáði sé eitthvað lítið beauty. Ekkert efni í Little Miss Sunshine allavega.
Enda vildi ég alltaf líkjast Önnu í "Lína Langsokkur - á ferð og flugi".
ÁSTARKVEÐJA -M
"...íklæddur dumbrauðum flónellnáttfötum með ísaumaðri kórónu á brjóstvasanum sem er skjaldamerki hertogaættar frá Dusseldorf, þekkt fyrir langrækni og þvalt handtak að loknum fasanaveiðitúrum, - nei! Herr Snitzl lærir latínu af mjög miklum móð..."hahaha!Þú færð króatískir-folar-nóbelinn fyrir þessa lýsingu (jafnvel þó að þetta blogg sé óþarflega óvægið í minn garð, just have to say it)en uuuu...af hverju er efsta myndin? Gæti samt ekki verið meira sammála þér með Must.h.And. Eym.Þetta próf var líka hálfgrátlegt. Bara perralegur þessi áhugi SA á munkum í fornöld.
ReplyDeletep.s. þessi snúður gæti verið sænskur tvíburabróðir þinn, mér finnst þú ættir að nota sambönd þín í svíþjóð til að leita þessa dúllu upp.
Þinn að eilífu, Snitz.
Spegilaugað (með titrandi nasvængi og lokuð augu eftir hálfra mínútna þögn): "Ekki prútta við mig um einkunnir!"
ReplyDeletehahahaha ég grét næstum úr hlátri yfir "(með titrandi nasvængi og lokuð augu eftir hálfra mínútna þögn)" fullkomin lýsing!! og ég man eftir þessu, hann var sérstaklega andstyggilegur við þig þarna