Tuesday, January 25, 2011

Hurðin o.fl.

Hæ, folar.
Í dag fór ég í skólann en það er orðinn nánast vani eftir bráðlega tólf ár af ástundun.
Þetta er þrautpínd dauðaganga og afplánun helvísks menntakerfis en stundum er alveg mjög fínt þar (: Sérstaklega þegar maður er komin heim. Þá getur maður verið alveg: "Hvað var í gangi þarna?" og alveg: "Vá, hvað ég er full  af seiglu fyrst ég meikaði þennan skóladag sem var bara svo ekki absorbing".
Og getur byrjað að lesa í vafasamar augngotur, sérkennilegar aðstæður og furðulegt háttalag. Dæmi sem maður bara lætur fljóta áfram fyrir augunum á sér þegar maður er í miðri senu.
Dagurinn í dag var þriðjudagur. Þriðjudagar eru ömurlegustu dagar vikunnar.
Þessi var ágætur svo ég býst við hinu versta á morgun. Ég er strax orðin kvíðin fyrir því að mæta ólærð í tíma, missa úr hjartslög í tjarnahringnum og vera svöng í matarhléinu.
Skólinn minn er algjört greni að innan. Að utan er þetta mjög sæt bygging með rómantískum old school sjarma (þó ég búist við því að ef ég setji upp flirt-glasses geti ég séð eitthvað slíkt innan dyra líka) og með kapítalísku ívafi þar sem miðjan trónir hærra og eðalhvítir veggirnir láta mann hugsa um bómullarekrur (hint í borgarastyrjöldina fyrir ykkur sem eruð vel að ykkur í bókmennta - og mannkynssögunni: NIÐUR MEÐ BLÁSTAKKA aand oh my Rhett..)  og pergament. Svo bakvið er bara eitthvað rusl eins og Snitzel benti kurteislega á um daginn. 
Til að setja punktinn yfir i-ið á Musteri hinnar andlegu eymdar (Snitz, þú mannst) er það auðvitað Hurðin.
Hurðin hljómar sem saklaust fyrirbæri, ferköntuð trésmíð haganlega komið fyrir í dyragætt aðalinngangs skólans. Það eru auðvitað bara skrauthvörf því Hurðin er gömul afsökun fyrir aftökum á Íslandi.
Það var einu sinni smiður sem hét Bergsteinn. Bergsteinn smíðaði Musterið en eftir að smíðum var lokið formlega var hans þó enn þörf þar sem hann sinnti ýmsum smávægilegum störfum innandyra. Með sög í sigggrónum höndum sat hann löngum í einhverju horninu og lagaði fúnar sperrur og fleira. Ekki brást það að hann fékk, á göngum skólans, að kenna á hrokafullum augngotum nemenda, eins og oddahvössum fjaðurpennum stungið í brotið bak hins heiðarlega vinnumanns. Bergsteini sveið undan þessu og hafði óbeit á renglulegum dekursnúðum með dýrkeyptar skólabækur sem smeygðu sér inn um dyr Musterisins með ekki eitt ærlegt handtak á ferilsskránni.
Eins og gerist með menn varð Bergsteinn brátt geðsjúkur af skapofsa og smíðaði nýja hurð, hola að innan sem hann fyllti með málmstöngum til þess að geta fylgst með matrósarklæddum nemahríslunum kremjast milli stafs og hurðar og hljóta þar með mjög ósmekklegan dauðdaga.
Bergsteinn var sendur í mjög langt gæsluvarðhald að flippkasti loknu. En það er önnur saga.

                                                  Þetta er náttúrulega bara mjög ógeðslegt.

                                                         Þetta er Hurðin.

Hurðin er þarna enn.



Þessi sakleysislegi skólastrákur var fórnarlamb Bergsteins og Hurðarinnar. Hann var uppi fyrir tíma myndavéla en sessunautur rissaði upp þessa mynd af honum í tíma meðan allt lék enn í lyndi. 




Allavega, folar.. ég og Mat að lokum.







Adios.. bæ, ykkar M.

5 comments:

  1. HÚRRA! Kominn tími til að einhver fjalli um þetta drápstól sem þykist vera hurð. Í morgun til dæmis missti ég nánast handlegg. Mojo, þú ert hetja.

    p.s. glæsileg mynd af fórnarlambi bergsteins, heimta eina svona af mér á morgun. Þú ert nú svo mikill kunstner hehehe.

    p.s.II ég heimta að fá að vita hvað þú gúgglaðir til að fá þessa mynd upp- óóógeðslegt!

    p.s.III vá hvað mat gordon er heitur þegar hann smellir svona fingrunum, án djóks, hvwernig fer hann að þessu?

    Þinn vinur og aðdáandi, Krissi.

    ReplyDelete
  2. ég veit ekki hvernig hann fer að þessu en við drögumst að hvort öðru. ég spái hálfu ári af aðskilnaði tveggja helmingssála (sem byrja báðar á M já tilviljun eða uuhhh nei?!) í viðbót svo verður bara það sem er meant to be alvöru.

    Takk samt æðislega stína. By the way mér fannst hvwernig meira viðeigandi.

    ReplyDelete
  3. Já, þú ert líka svo quirky og hefur svo sjálfstæðar skoðanir. Svo ertu líka spretthlaupari, hver hefur nokkru sinni sagt nei við spretthlaupara?

    ReplyDelete