Sunday, November 27, 2011

Jólin eru að koma

Mikið rétt prófin eru að koma.
Framundan er andstyggilegur tími depurðar og námslegrar ofkeyrslu. Sko, ég hef heyrt um fólk sem dettur í einhverja svona jólaprófsstemningu, eitthvað svona, oh með fullan kassa af mandarínum, hlauporma í poka, prófatöfluna hengda upp fyrir framan mig, kolniðamyrkur úti og hljóðláta snjókomu við gluggann EN ÉG ER EKKI EIN AF ÞESSUM TÝPUM. Reyndar get ég ekki skilið það hvað getur verið gaman við þetta?
Ég meina mandarínur eru góðar, hlaupormar eru ágætir, snjókoma er fín, en prófatafla? Hvað er það? Og sveitt andvökukvöld og skítugir nemendur samanþröngvaðir í saggafullum kennslustofum leysandi próf til þess eins að fá einkunnablöð rétt fyrir jól sem fá þau til að gráta nema þau heiti stína og þá eru þau ánægð en það er undantekning?!?
Þetta stefnir í skemmtilegt blog hjá mér! Brandari.
Þetta verður mjög erfið vika. Ég hefði getað gert mér hana auðveldari með því að byrja að læra fyrir latínujólaprófið (sem verður á fimmtudaginn) en í staðinn ákvað ég að ögra sjálfri mér og gera ekkert nema virkilega leggja mig fram við að taka óskynsamlegar ákvarðanir sem ég þarf að díla við í framtíðinni.
Það er leitt hvað framtíðin er fljót að koma. Hún kemur réttara sagt á morgun.

Það er ný þáttaröð komin í gang. Ameríka elskaði hana og ég býst við því að ég, sem voða amerískur neytandi muni elska hana líka, perfect að þetta komi þegar prófin eru að byrja. Takk herra alheimur, þú vinnur með mér.
Þátturinn heitir Pan am. Ég horfði á trailerinn á youtube. Þetta verður eitthvað..
Mér fannst þetta svolítið svipað Mad men. Þarna eru konur, þær eru sætar, þær eru svolítið fiftís - sixtís legar.


Reiðir menn, elska þá þáttaröð. Samt löngu dottin úr, horfði eitthvað smá á þætti úr fjórðu seríu um daginn. Það var alveg allt í lagi. Þetta eru svona þættir sem sigra sjónvarpsáhorfandann með lævi blöndnu andrúmslofti og kynþokka en ekki rosalegu handriti (samt alveg gott handrit en samt ekki eitthvað sem myndi ganga upp ef Christina Hendricks væri í a-skálum og January Jones léleg leikkona og þau væru ekki öll í flottum fötum og settið svona fab og eitthvað, January er einmitt góð leikkona, mér finnst hún ætti að fá verðlaun, hefur hún fengið þau? Veit ekki).

Slæmt blogg. Ég er farin að gera stílamöppu til að gleðja enskukennarann minn. Hann gaf mér D fyrir síðustu stílamöppu. Ég held honum þyki vænt um mig og hann sé að nota amerískar leiðir til að hvetja mig til dáða.
Skelli með að lokum ljóði úr uppáhalds bókinni minni frá því ég var barn. Ég vona að fólk haldi áfram að ritskoða sjónvarps og bíó - efni íslenskra barna en leyfi þeim að vaða eldinn þegar kemur að barnabókum. Það gerði ég og lítið á mig núna!


ÁSTARKVEÐJA M

2 comments:

  1. Ekki minna mig á jólaprófin, er doomed...Ætti einmitt líka að vera að læra, beil.
    Fínt blogg samt, ætla að skoða þennan þátt, komst samt aldrei inn í mad men...

    ReplyDelete
  2. Love that you are blogging again. Samt einmitt á þeim tíma þegar ég ætti að vera að forðst veraldarvefinn en ówell. Keep up the good work maja, þú ert minn yndlingshöfundur<3

    ReplyDelete