Tina Turner - What's love got to do with it
Tina Turner er svo mikið legend, ég meina, hver púllar þetta dú? GO Tina 4ever folar! Svo er þetta lag lagið okkar Stínu í Singstar, ásamt vitanlega Tom Jones laginu. Afmælið hennar Eyrúnar vinkonu var í gær. Ætti ég að blogga um hana? Á gullöld hópbloggsíðna voru afmælisblogg bara ákveðið félagslegt fyrirbæri. Ég meina. Ef þú fékkst ekki afmælisblogg einhversstaðar, varstu bara ekkert. Ég meina, þú varst bara einhver fjandans félagsbotnlangi, bara eitthvað svona manndrasl. Ég ætti að skella inn einhverri mynd og kannski einhverri einkunn eða eitthvað. Eyrún er svona sjöa. Djók, hún er algjör tía.
Hvað er að mér.
Sorry, þetta er ófyrirgefanlegt folaljúflingar.
Ég blogga aldrei. Það væri afsakanlegt ef ég lærði heima eða stundaði félagsleg samskipti (fjölskyldan er ekki tekin með né platónskt ástarsamband mitt við þig Stína). Hins vegar læri ég aldrei heima en held því fram að þetta blogg sé eitthvað svona Princess diary dæmi. Ég hef samt afsökun.
Afsökun 1: Tölvan mín er biluð.
Afsökun 2: Vá, ég var að horfa á Robin Hood áðan. Það var ömurlegt krakkar! Robin Hood á ekki að vera leikin af Russell Crowe. Robin Hood á ekki að vera í hasarmyndabúningi. Þetta er algjört rugl. Ég á bókina í A4 stærð, myndskreytta, upp í sumarbústað. Ókei, ég þekki þennan mann. Svo ætti Hrói Höttur að verða alþjóðlegt heiti hans. Robin Hood er svo mikið verra. Hins vegar, persónan sjálf, Hrói, er rosalega aðlaðandi og svona "inspiring" týpa. Í bókinni sjáiði til. Russell Crowe er bara einhver þrekinn náungi með bauga og andlit sem beinlínis æpir á mann: "ÉG ER MÖMMUSTRÁKUR MEÐ PABBAKOMPLEXA" Hata þessa manntegund. Það góða við þessa langdregnu og leiðinlegu mynd var að Cate Blanchett var í henni. Wáw.
RANGT
Rétt..
Ég er ekkert að segja að Ridley Scott hafi verið hinn fullkomni Hrói, en þó svo margfalt nær því. Við hann segi ég: Flott hjá þér sykursnúður! Við Russell segi ég: Russell farðu aftur í löggukrimmann sem þú áttir að fæðast inn í deyja í.
Jæja. Í gær átti Eyrún afmæli og í dag á yndið hún litla systir mín afmæli. Ég er að segja ykkur það. Núlifandi yngsta kynslóð er alveg að fara að nálgast grafarbakkann með þessu áframhaldi. Ég var fóstur tíundaáratugarins og í morgun þegar ég leit í spegil taldi ég fjórar ennishrukkur. Ef þú varst barn áttunda áratugarins, sko, ég segi bara eitt og það er "öndunarvélin er við sjóndeildarhringinn".
Það var gaman í afmælinu í gær ef þið viljið vita það. Það hafði samt sína annmarka, ég meina, hin fullkomna kvöldstund er annmarkalaus og hin fullkomna kvöldstund er bara möguleg innihaldi hún Mat Gordon eða Clive Owen og þá verður hún að eiga sér stað í fortíðinni því núna er Owen bara eitthvað að horfa á stubbana með börnunum sínum og að vera útivinnandi faðir. UUHHHHG.
Ekki það að ég hafi eitthvað á móti útivinnandi feðrum.
Við fórum út að borða á Hornið, borðuðum yfir okkur af sælgæti (í mínu tilviki, hvenær ætla ég að þroskast í alvöru..) og sungum nágrannanna geðveika í Singstar (samt ekki, mér finndist gaman að hlusta á sautján ára stelpur syngja WHATS LOVE GOT TO DO, GOT TO WITH IT með tilheyrandi fótstappi), vanmetnasta og besta BESTA afþreying sögunnar. Hversu margir eru HitArtist sem Tina Turner? Og við Stína vorum ekki einu sinni að vanda okkur. Þá hefðum við orðið Sing Star, báðar. Afmælisbarnið var ánægt með gjafirnar sínar. Afmælisbarnið? Hvernig læt ég. Afmæliskonan ætlaði ég að segja. Rúnsi var í því að spilla deginum í barnalega hluti. Í alvöru. MARK MY WORDS. Þann 27. apríl verð ég ekki heima að læra undir dönskustúdentspróf. Þið finnið mig út í Nóatúni að kaupa klámblað sem mjög löghlýðinn borgari með bara þennan average siðferðiskenndarstuðul.
Magic er svo mikið lífið, þú verður bara geðveikt glaður af því.
Myndi skrifa lengra en mér tókst að minnka skjáinn svo nú sé ég ekki það sem skrifa með því að píra augun mjög mikið svo ég verð að hætta í smá.
MMMMMM
Ég vildi að þú skrifaðir í blaðið Maja. Þú myndir svoleiðis láta þessa bakþankara vinna fyrir kaupinu sínu. Er líka ekki rangt að bara miðaldra fólk skrifi í blöðin? Blöð sem eru fyrir alla Íslendinga, ég meina það eru ekki allir 45 ára og persónulega er ég komin með upp í kok af kreppuvæli.
ReplyDeleteAnnars finnst mér Clive Owen svolítið úr sér genginn, ég las þetta með ást hans á Stubbunum og ég var ekkert sérlega heilluð.
L8888r
-KkRrIiSsTtÍíNn
já og mér finnst líka Rhett Butler úr sér genginn. Ég meina. Væri hann af "holdi" og "blóði" þá væri hann morkið lík í gröf núna.
ReplyDeleteERTU ALGJÖRLEGA VANHEIL?
Ég elska Rhett, sem þann Rhett sem hann er, ekki Rhett 2011, rétt eins og ég er mjög veik fyrir Clive Owen eins og hann var fyrir nokkrum árum. Æj, ég get ekki lýst þessu. Hrifning er í fjórðu víddinni, ekki vera svona bundin í viðjar tímans ókei...
en vá takk, ég þarf að fara að skrifa niður hrósin þín, án kóks, þetta er rosalega.. hvað myndi Karta Kroppur segja.. upplyftandandi? Þú ert langbest, sömuleiðis stína! Ég myndi lesa bakþankana þína og aldrei, aldrei, fá tár í augun af leiðindum eins og er alltaf að gerast á morgnana núna. Og líka annað.. bakþankar.. hverslags hugtak er það? EITT ORÐ: MIÐALDRA.
M
Afsakaðu að ég skyldi gera athugasemd við ást þína á Clive en má ég segja eitt...hann er vissulega myndarlegur en hann er fæddur 1964!!!Ég er ekki viss um að hann geti opnað Word skjal. Rhett Butler er allt annar handleggur, einn af hans fjölmörgu kostum er sá að hann verður aldrei morkið lík eða alzheimersveikur heili á einhverju Suðurríkjaelliheimili. Hann er stórfenglega ódauðlegur.
ReplyDeleteKarta Kroppur myndi líklega nota eitthvert vestmanneyskt samheiti fyrir upplyftandi eins og til dæmis svífandi eða eitthvað. Nei okei kannski ekki, ég á erfitt með að setja mig inn í orðaforða þessa gimsteins.
upplyftandi var orðaforðinn hennar! og sko, Clive Owen er líka ódauðlegur, hann er kvikmyndastjarna! ég get horft á inside job milljón sinnum og óskað þess að hafa hann við hlið mér. Word skjal! pff, hver getur opnað það? í alvöru? réttið upp hönd ókei? i'm gonna come clear, ég google alltaf: how to open a word document
ReplyDelete