Thursday, March 3, 2011

Allt að gerast

Nei, grín, auðvitað ekkert að gerast.
 Hvenær fer Nimrod frændi að fara að heimsækja mig í draumi og tilkynna mér að ég sé andi? Hvenær fer ég að finna týndu tvíburasystur mína? Hvenær rennur (raunverulega) ellefu ára afmælisdagurinn minn upp og ég fæ ákveðið bréf frá einum skóla? Hvenær ætla ég að lenda í því að detta í gegnum spegil eða finna hring með heimsskiladufti á eða eitthvað.. Ég er farin að finna virkilega höfnunarlykt af öllu þessu máli.
Hvernig gat ég gleymst?
Ég er ekki að fara að sætta mig við það að fá eitthvað svona "lífið er ævintýri"- eitthvað..

Já, og Fríða  takk fyrir góða kommentið þitt, þú afsakar að ég gat aldrei svarað og blogg eru sjaldgæfur fugl hér.. en Heiðan þín var líka Heiðan hennar Stínu, fyndið! 


Þangað til eitthvað virkilega ævintýralegt hendir mig ætla ég bara að sitja inn í herberginu mínu, stara út í loftið og slefa. Þetta verður afneitun á leiðinlegan hversdaginn.

En samt, til að flagga einlægninni, verð ég að viðurkenna að ég held að ævintýri í anda C.S Lewis eða Harry Potters væru kannski of mikið. Ég meina fyrir taugarnar.


Ég átti, fyrir nokkrum mánuðum, samræður við eldri systur mína hana Herlöngu, um það hvað ég vildi hafa óskað að foreldrar mínir hefðu verið fornleifafræðingar sem sérhæfðu sig í svona svipuðu dóti og pabbi Indiana Jones hafði gert, eða í það minnsta rótlausir flækingar með passlega mikinn pening á milli handanna. Ég ætlaði að útvega framtíðarbörnum mínum svoleiðis líf.
Herlöng sagði að það væri svo ótrúlega vitlaust hjá mér, því öll börn þráðu rætur. Öryggi.
Ég samþykki þetta. En afhverju gátu foreldrar mínir ekki valið spennandi rætur? Eins og í austurrísku ölpunum. Ég vísa til Heiðu og samtals ég átti um þetta mál við Stínu um daginn. Þetta er það sem börn þrá! Frelsið fólgið í ævintýrunum. Bara ég, þú, nestið og flæðandi hlíðar alpanna með litlum hvítum geitahnoðrum.
Betra og heilsteyptara blogg um þetta síðar.

Já, og bráðlega kemur listi. Listi yfir eitthvað sem er best.


Bæ, Hvarerégmaja


1 comment:

  1. ÉG KOMMENTAÐI SVO LANGT KOMMENT EN ÞAÐ EYDDIST. Skil ekki áhrif mín á tölvur......

    gott blogg samt, góð majuleg hugleiðing.

    hehehe þú ert að tala við mömmu mína hehehe
    Svo ég verð að tala við í gegnum komment (þv´´i þú ert að tala við mömmu mína=FRÍKÍ)

    skrýtið þetta með heiðurnar samt, margar útgáfur greinilega. En blessbless litla rínargull, jeg skal lære Latin

    ReplyDelete